Fasteignasalan Byggð 464-9955 - EinkasalaTjarnarlundur 16 - 401 (H)
Um er að ræða 3-4 herbergja íbúð á 4. og efstu hæð í mjög vel staðsettu fjölbýli á Brekkunni. Eignin er samtals 92,1 fm., þar af er sér geymsla í sameign 5,1 fm..
**Eignin er í útleigu og hafa leigjendur mikinn áhuga á því að leigja áfram**Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, geymslu innan íbúðar sem er notuð sem svefnherbergi í dag, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu í sameign.
Forstofa er með ljósar flísar á gólfi og bæði opnu fatahengi, skápum og skúffum.
Hol og gangur er með parket á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi og þaðan er gengið út á góðar svalir til vesturs.
Baðherbergi er með aðstöðu fyrir þvottavél, ljósa innréttingu í kringum vask og sturtuklefa.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parket á gólfi og fataskápum.
Eldhús er með parket á gólfi, upprunalegri innréttingu með stæði fyrir ísskáp, góður borðkrókur og glæsilegt útsýni til austurs.
Geymsla innan íbúðar er aðgengileg af gangi en ekki eldhúsi eins og er á teikningum. Það rými er í dag nýtt sem svefnherbergi.
Annað:Eftirfarandi viðhald á vegum húsfélagsins undanfarin ár eru eftirfarandi:
-Málað að utan og múrviðgert
-Þak einangrað og viðgert
-Skipt um gler í íbúð.
-Stigagangur teppalagður og málaður
-Mynd dyrasími
-Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er í sameign
-Frábær staðsetning, stutt í íþróttasvæði KA, verslun og ýmis konar þjónustu
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:olafur@byggd.is
greta@byggd.is
bjorn@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955