
Við reiknum hversu mikið þú getur greitt á þægilegan hátt í hverjum mánuði. Greiðslumatið tekur mið af reglum Seðlabanka Íslands um hámarks greiðslubyrði fasteignalána.
Þú slærð inn tekjur, sparnað, önnur lán og útgjöld, og sérð samstundis greiðslugetu, kaupgetu og lánsgetu.
Ef þú hefur fyllt út greiðslumat hjá Aurbjörgu áður, þá færast upplýsingarnar þínar inn í greiðslumatið á síðu Lántökubestunar. Þú breytir því sem á að breytast og við endurreiknum.

Ein stilling í fyrsta skrefinu leiðir þig í gegnum útreikning fyrir fyrstu kaup. Ef þú uppfyllir skilyrði fyrstu kaupenda tekur bestunin mið af þeim reglum og þeim kjörum sem eru í boði.
Hlutfall ráðstöfunartekna, eftir skatt, sem má fara í afborganir samkvæmt reglum Seðlabanka Íslands. Í dæmi með 700.000 kr. á mánuði fer greiðslugetan úr 245.000 kr. í 280.000 kr.
Hlutfall kaupverðs sem þú þarft að leggja út, sem svarar til 90 % veðsetningar í stað 80 %. Á eign sem kostar 70 m.kr. er því lágmarksútborgun 7 m.kr. en ekki 14 m.kr. Þar munar 7 milljónum.
Hjá sumum lánveitendum bera hæstu veðsetningarþrepin hærri vexti, hjá öðrum eru vextirnir þeir sömu og á 80 %. Bestunin ber saman alla lánveitendur sem þú valdir og finnur hvar hærra lán kostar þig minnst.

Er einhver á heimilinu að kaupa sína fyrstu fasteign? Kveiktu á Fyrstu kaup og við reiknum allt upp á nýtt.

Veldu eignina sem þú ert að kaupa. Ef þú veist ekki kaupverðið notum við síðasta verðmat Aurbjargar sem útgangspunkt.
Þú stillir útborgunina með sleða eða slærð inn nákvæma upphæð, og sérð jafnóðum lánsþörfina og veðsetningarhlutfallið.
Þú velur það sem skiptir þig mestu máli og bestunin raðar öllum leiðum eftir því markmiði.
Þú getur líka stillt hámarks lánstíma og verðbólguspá. Þú getur alltaf prófað fleiri leiðir seinna og borið þær saman.


Aurbjörg er með kjör 31 lánveitanda á skrá, hvort sem það séu bankar og sparisjóðir eða lífeyrissjóðir. Þú velur hverja þeirra þú vilt hafa í Lántökubestun. Flestir taka með alla banka og einn til tvo lífeyrissjóði.
Þú getur einnig takmarkað lánategundirnar sem bestunin skoðar. Verðtryggt eða óverðtryggt, jafnar afborganir eða jafnar greiðslur, fastir eða breytilegir vextir. Slökktu á þeim lántegundum sem þú þarft ekki að sjá.
Lántökubestunin sýnir þér nokkrar mismunandi lánaáætlanir sem þú getur skoðað og metið, raðað út frá þeim markmiðum sem þú valdir.
Þú sérð nákvæmlega hvaða lán mynda hverja áætlun, hjá hvaða lánveitanda, á hvaða kjörum, á hvaða veðsetningarhlutfalli og hvaða tegund.
Þú sérð heildargreiðslu og núvirta heildargreiðslu, fyrstu og hæstu mánaðargreiðslu, lántökugjald og hvenær þú verður skuldlaus. Gröfin sýna eftirstandandi skuld og mánaðargreiðslu yfir allan lánstímann.
