Innborgunarbestun

Hvernig er best að greiða niður lánin?

Innborgunarbestun Aurbjargar reiknar út hvernig best er að ráðstafa aukagreiðslum milli lánanna þinna til að hámarka sparnað og greiða skuldir hraðar niður.

Hvernig virkar Innborgunarbestun?

  1. Veldu þau lán sem þú ætlar að greiða inn á.
  2. Veldu tegund aukagreiðslu, hvort sem hún er stök, mánaðarleg eða föst heildargreiðsla.
  3. Veldu þér markmið þegar kemur að sparnaði.
  4. Við reiknum út og sýnum þér bestu leiðina til að greiða niður lánin.
Val um staka greiðslu, fasta aukagreiðslu eða fasta heildargreiðslu ásamt upphæð og verðtryggingarstillingu.
Hvað er mín greiðslugeta?

Þegar þú ert með fleiri en eitt lán

Mörg heimili eru með fleiri en eitt lán, til dæmis húsnæðislán, bílalán og önnur neyslulán.

Þegar um fleiri en eitt lán er að ræða er ekki alltaf hagkvæmast að byrja á láninu með hæstu vextina eða lægsta höfuðstólinn. Innborgunarbestun Aurbjargar greinir öll lánin í heild, raðar eftir stærðfræðilegum niðurstöðum bestunarfræða og fylgir því engum gömlum þumalputtareglum.

Þegar þú ert með fleiri en eitt lán

Hvað færð þú út úr Innborgunarbestun?

Innborgunarbestun sýnir þér svart á hvítu hvernig best er að forgangsraða aukagreiðslum og hvað það skilar þér:

  • Hvaða lán fyrst: Hvaða lán borgar sig að greiða aukalega inn á fyrst.
  • Röð greiðslna: Í hvaða röð best er að greiða niður lánin þín.
  • Árleg ávöxtun: Hvaða árlegri ávöxtun greiðslurnar jafngilda.
  • Áhrif á lánstíma: Hversu mikið þú styttir heildarlánstímann.
  • Nákvæm greiðsluáætlun.
  • Þróun höfuðstóls og greiðslubyrðar yfir tímann.
  • Myndrænar niðurstöður sem sýna þróun höfuðstóls, vaxta og eftirstöðva með og án innborgunar.
Hvað færð þú út úr Innborgunarbestun?Greiðsluáætlun sem sýnir röð aukagreiðslna, hvenær hvert lán greiðist upp og sparaða vexti.

Hámarkaðu heildarsparnað eða núvirtan sparnað

Þú velur hvort þú hámarkar þínar aukagreiðslur með tilliti til heildarsparnaðar eða núvirts sparnaðar.

Þegar þú hámarkar heildarsparnað hámarkar þú þann heildar vaxtakostnað sem sparast yfir allan lánstímann.

Þegar þú hámarkar núvirtan sparnað hámarkar þú virði framtíðarsparnaðar miðað við verðgildi dagsins í dag.

Hámarkaðu heildarsparnað eða núvirtan sparnað

Berðu saman mismunandi innborgunarleiðir

Á að byrja að greiða niður lánið með hæstu vextina, lægsta höfuðstólinn eða fara Aurbjargar leiðina?

Margir styðjast við snjóflóða- eða snjóboltaleiðina þegar þeir greiða niður skuldir. Innborgunarbestun Aurbjargar ber þessar leiðir saman við Aurbjargarleiðina og sýnir þér skýrt hvaða leið skilar mestum ávinningi.

Samanburðartafla sem sýnir heildarsparnað, núvirtan sparnað, lokadag og greiðsluröð fyrir leið Aurbjargar og þrjár aðrar innborgunaraðferðir.
Aurbjörg finnur tækifæri í fjármálum heimilisins
Láttu Aurbjörgu standa vaktina og hjálpa þér að taka betri ákvarðanir í fjármálum.
Aurbjörg
Markmið Aurbjargar er að auka fjármálalæsi, auka gagnsæi og aðstoða þig við að taka upplýstari og betri ákvarðanir í fjármálum.
RannisTaekniþrounarsjod
© 2017-2026 • Aurbjörg ehf. • 430518-1430 • Lágmúla 9 • 108 Reykjavík
TikTokFacebookInstagram