Lífeyrisbestun

Hvenær vilt þú hætta að vinna? Við finnum bestu leiðina saman

Lífeyrisbestun Aurbjargar er snjallt bestunartól sem hjálpar þér að taka betri ákvarðanir um seinni árin þín. Þú setur inn upplýsingar um tekjur, sparnað og lífeyri og við finnum bestu leiðina fyrir þig.

Hvað er þitt markmið?

Hætta að vinna sem fyrst
Við reiknum út hvenær þú getur hætt að vinna og skipuleggjum úttektir út frá þínum sparnaði og markmiði um mánaðarlega framfærslu.
Hætta að vinna __ ára
Við reiknum út hversu mikið þú þarft að spara og hvernig úttektir ættu að líta út til þess að ná markmiði um starfslokaaldur.
Hámarka lífeyrinn minn
Við reiknum út hvernig þú getur fengið sem hæsta mánaðarlega framfærslu og hagrætt úttektum miðað við sparnað og markmið um starfslokaaldur.

Svona virkar þetta

Eftir því hvaða leið þú velur þá svarar þú nokkrum einföldum spurningum um:

  • Laun
  • Sparnað
  • Lífeyrissjóð og séreign
  • Markmið um starfslok

Við keyrum svo allar mögulegar sviðsmyndir og finnum bestu lausnina fyrir þig.

Skoða mína framtíð

Skýr mynd af framtíðinni

Lífeyrisbestun hámarkar niðurstöðuna út frá þínu markmiði og tekur tillit til:

  • Hvenær þú byrjar að taka út lífeyri
  • Hvernig þú nýtir séreign og tilgreinda séreign
  • Hvenær best er að nota sparnað
  • Greiðsluflæði fyrir eftirlaunaaldurinn

Þú færð raunhæfa áætlun fyrir framtíðina.

Prófaðu Lífeyrisbestun

Byggt á íslenska lífeyriskerfinu

Lífeyrisbestun tekur mið af íslensku lífeyriskerfi og byggir á réttindatöflum lífeyrissjóða, reglum Tryggingastofnunar Ríkisins og gildandi skattareglum. Þannig færðu raunhæfar niðurstöður fyrir þína framtíð.

Skoða mína framtíð
Byggt á íslenska lífeyriskerfinu

Hvernig lítur þín framtíð út?

Lífeyrisbestun er ekki bara bestunartól, heldur leiðarvísir. Flestir vita ekki:

  • Hvenær þeir geta hætt að vinna
  • Hversu mikið þeir þurfa að spara
  • Hvernig best er að nýta lífeyrissparnað

Lífeyrisbestun svarar þessum spurningum á nokkrum mínutum.

Þín lífeyris framtíð
Aurbjörg finnur tækifæri í fjármálum heimilisins
Láttu Aurbjörgu standa vaktina og hjálpa þér að taka betri ákvarðanir í fjármálum.
Aurbjörg
Markmið Aurbjargar er að auka fjármálalæsi, auka gagnsæi og aðstoða þig við að taka upplýstari og betri ákvarðanir í fjármálum.
RannisTaekniþrounarsjod
© 2017-2026 • Aurbjörg ehf. • 430518-1430 • Lágmúla 9 • 108 Reykjavík
TikTokFacebookInstagram