Sjáðu hvernig aukagreiðslur hafa áhrif á lánið þitt. Innborgunarreiknivél Aurbjargar sýnir þér hversu mikið þú getur sparað í vaxtakostnað, áhrif aukagreiðslna á lánstíma og hvaða ávöxtun aukagreiðslan skilar.
Með innborgunarreiknivélinni getur þú séð mjög skýrt hvort aukagreiðsla á lán borgi sig.
Við reiknum út hvaða árlegu ávöxtun aukagreiðslan jafngildir og hjálpum þér að meta hvort hagkvæmara sé að greiða inn á lánið eða ráðstafa peningnum í sparnað eða fjárfestingu.
Ef tekið er tillit til fjármagnstekjuskatts þarf ávöxtun sparnaðarins eða fjárfestingarinnar að vera enn hærri til að skila sama árangri.
Sjáðu hvernig stök aukagreiðsla getur lækkað vaxtakostnað lánsins.
Mánaðarleg aukagreiðsla
Finndu út hversu mikið þú getur sparað með mánaðarlegum aukagreiðslum.
Föst heildargreiðsla
Festu heildargreiðslu lánsins þó afborgunin lækki og nýttu mismuninn til að greiða lánið hraðar niður. Sjáðu hvernig skipting greiðslunnar breytist með tímanum.
Tímabundnar aukagreiðslur
Vilt þú sjá ávinning tímabundna aukagreiðslna? Það er kannski óraunhæft að gera ráð fyrir mánaðarlegri aukagreiðslu eða fastri heildargreiðslu út lánstímann ef lánstími er langur. Veldu hversu lengi þú ætlar að greiða aukalega inn á lánið og sjáðu hvaða áhrif það hefur.