Endurfjármögnunarbestun

Finndu bestu leiðina til að endurfjármagna lánin þín

Endurfjármögnunarbestun Aurbjargar finnur hagkvæmustu leiðina til að endurfjármagna lánin þín út frá bestunarfræðum. Hvort sem þú vilt endurfjármagna húsnæðislánin, bílalánið, neyslulánin eða öll saman, þá finnum við þá lausn sem hentar markmiðunum þínum best.
Val á lánum og veðum í Endurfjármögnunarbestun Aurbjargar

Þú velur hvaða lán þú vilt endurfjármagna

Þú ákveður hvaða lán Aurbjörg á að taka tillit til við endurfjármögnunina. Það getur verið eitt húsnæðislán, mörg húsnæðislán, húsnæðislán með mismunandi veðstað, bílalán, neyslulán eða öll lán heimilisins. Bestunin finnur svo hagkvæmustu leiðina til endurfjármögnunar út frá þeim markmiðum sem þú velur.
Yfirlit valinna lána og veða fyrir endurfjármögnun

Við finnum bestu samsetningu lánanna

Niðurstöðurnar geta verið mismunandi. Út frá bestunarfræðum reiknum við út fyrir þig hvort best sé að endurfjármagna öll lánin, halda einhverjum, flytja veðstað lánanna eða annað. Endurfjármögnunarbestunin reiknar allar mögulegar leiðir og finnur þá sem skilar mestum ávinningi.
Samanburður endurfjármögnunaráætlana og besta leiðin

Endurfjármögnun út frá þínum markmiðum

Þú velur það sem skiptir þig mestu máli.
  • Lægsta mánaðargreiðslan
  • Lægsti heildarkostnaðurinn
  • Að greiða upp skuldirnar sem fyrst
Þú getur líka stillt ýmis önnur atriði, eins og hámarks mánaðargreiðslu eða tengt greiðslumat við leitina. Einnig er hægt að stilla hámarks lánstíma, valið um tegund láns, greiðslumáta og vaxtategund. Það er líka hægt að velja sérstaka lánveitendur.
Val á markmiði: lægsta mánaðargreiðsla, lægsti heildarkostnaður eða skuldlaus sem fyrstStillingar fyrir hámarks mánaðargreiðslu, lánstíma, lánategund og lánveitendur

Þarftu að losa eigið fé?

Viltu losa eigið fé við endurfjármögnunina? Til dæmis fyrir framkvæmdum, bílakaupum eða bara til að auka svigrúmið. Þú getur stillt það sérstaklega og við finnum þær endurfjármögnunarlausnir sem henta best.
Stilling á úttekt eigin fjár við endurfjármögnun

Hvaða niðurstöður færð þú?

Endurfjármögnunarbestunin sýnir þér nokkrar mismunandi endurfjármögnunaráætlanir sem þú getur skoðað og metið. Þú sérð nákvæmlega hvaða lán eru endurfjármögnuð og hvaða lánum er haldið. Þú sérð heildarsparnað, breytingu á mánaðargreiðslu og hvenær þú verður skuldlaus.
Niðurstöður Endurfjármögnunarbestunar: áætlanir, heildarsparnaður og breyting á mánaðargreiðslu
Aurbjörg finnur tækifæri í fjármálum heimilisins
Láttu Aurbjörgu standa vaktina og hjálpa þér að taka betri ákvarðanir í fjármálum.
Aurbjörg
Markmið Aurbjargar er að auka fjármálalæsi, auka gagnsæi og aðstoða þig við að taka upplýstari og betri ákvarðanir í fjármálum.
RannisTaekniþrounarsjod
© 2017-2026 • Aurbjörg ehf. • 430518-1430 • Lágmúla 9 • 108 Reykjavík
TikTokFacebookInstagram