LÓB fasteignir kynnir eignina Þelamörk 47, 810 Hveragerði, 4 herbergja raðhús, byggt árið 2021, staðsteypt á einni hæð með fjórum íbúðum í hverri raðhúsalengju. Á lóð eru tvö bílastæði fyrir hverja íbúð . Birt stærð 129.0 fm.
Í eigninni eru þrjú svefnherbergi þar af hjónasvíta með baðherbergi og fataherbergi inn af og tvö barnaherbergi,og möguleiki á að að bæta við fjórða herberginu. Fallegar og vandaðar innréttingar, tvö baðherbergi, þvottahús og geymsla. Malbikað bílastæði fyrir þrjá bíla og steypt sorptunnuskýli. Hellulögn er frá bílastæði að anddyri. Parket á gólfum að utan votrýmum, en þar eru flísar á gólfi, og á baðherbergi eru einnig flísar á veggjum. Eldhús og stofa í sameiginlegu rými og upptekið loft í stofu sem gerir mjög mikið fyrir rýmið. Úr stofu er útgengt á litla timburverönd með skjólveggjum. Ekkert gras er fyrir aftan hús. Allur frágangur fyrir framan hús er til fyrirmyndar og gerir eignina mjög aðlaðandi. Fyrir framan er útgengt út á litla timburverönd. Í eigninni eru tvö baðherbergi en í hjónaherbergi er auka baðherbergi með sturtu.
Raðhúsið er staðsett í grónu hverfi í Hveragerði þrátt fyrir að vera nýlega byggt sem er kostur. Mjög hátt er til lofts í stofu sem gerir rýmið mun meira aðlaðandi.
*** Eignin er laus við kaupsamning ***Nánari upplýsingar veitir
Kristófer Ari Te Maiharoa Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 6956134, tölvupóstur kristo@olafur.is.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 55.000 + vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.
Nánari upplýsingar veita Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggilltur fasteignasali kristo@olafur.is s: 416-2223, gsm: 695 6134 eða Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali oli@olafur.is - s: 416 2220 - gsm: 894 3209