ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:Huggulegt og vel skipulagt fjögurra herbergja raðhús við Þelamörk 47C í Hveragerði.
Húsið er staðsteypt, klætt að utan með lerki og áli í bland, soðinn pvc dúkur er á þaki.
Heildarstærð íbúðarinnar er 129 m2 og skiptist hún í forstofu, 2 baðherbergi, þvottahús, 3 svefnherbergi stofu og eldhús.
Parket er á gólfi í forstofu.
Baðherbergi er flísalagt, bæði gólf og hluti veggja en þar er góð innrétting og gólfsturta.
Barnaherbergin eru parketlögð og eru fataskápar í þeim báðum.
Hjónaherbergi er með opnum fataskápum og baðherbergi inn af.
Stofa og eldhús eru í opnu rými og er parket á gólfi og innbyggð lýsing í loftum. Útgengt er á baklóð í stofu.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu með innbyggðum tækjum og eyju.
Þvottahúsið er flísalagt.
Skjólveggir og sólpallur bæði fyrir framan og aftan hús. Innkeyrsla er malbikuð
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.