BÓKIÐ SKOÐUN Í SÍMA 899-3335. LIND fasteignasala kynnir í einkasölu nýja og glæsilega þriggja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) ásamt bílskúr við Sogaveg 73 í Reykjavík. Lyfta er í húsinu. Mikil lofthæð. Eldhús og stofa í opnu rými, tvö svefnherbergi, 68,8 fm þaksvalir til suðurs. Íbúðin afhendist ful... Sýna meira
BÓKIÐ SKOÐUN Í SÍMA 899-3335. LIND fasteignasala kynnir í einkasölu nýja og glæsilega þriggja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) ásamt bílskúr við Sogaveg 73 í Reykjavík. Lyfta er í húsinu. Mikil lofthæð. Eldhús og stofa í opnu rými, tvö svefnherbergi, 68,8 fm þaksvalir til suðurs. Íbúðin afhendist fullbúin með gólfefnum ásamt ísskáp og uppþvottavél. Parket er á herbergjum og alrými og baðherbergi flísalagt. Vandaðar Nobilia innréttingar frá Trésmiðju GKS, parket og innihurðir frá Birgisson. Íbúðin er vel skipulögð og með aukinni lofthæð. Rúmgóð, 16,9 fm geymsla í sameign auk 35,9 bílskúrs, innangengt frá sameign. Húsið er viðhaldslítið, eingangrað að utan og klætt með bárujárni að stærstum hluta, ál-tré gluggar. Hver íbúð er með sjálfstæða loftskiptisamstæðu. Húsið stendur hátt svo það er einkar glæsilegt útsýni til suðurs og norðurs. Björt og falleg eign miðsvæðis í borginni þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. AFHENDING VIÐ KAUPSAMNING. Íbúð 301:3ja herbergja íbúð á 3. hæð ásamt bílskúr. 68,8 fm þaksvalir í suður.Stærð: 150,9 fm, þar af geymsla 16,9 fm og 35,9 fm bílskúr. Lofthæð í alrými frá 290-386 cm. Lofthæð í herbergjum 260 cm.Nánari lýsing:Forstofa/inngangur: Parket á gólfi, fataskápur.Eldhús: Falleg, ljósgrá innrétting frá Nobilia. Eldhústæki frá AEG. Ísskápur og uppþvottavél fylgja.Stofa: Parket á gólfi, gólfsíðir gluggar. Útgengi á hellulagðar 68,8 fm þaksvalir til suðurs. Glæsilegt útsýni.Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.Svefnherbergi 2: Parket á gólfi, fataskápur.Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja, ljósgrá innrétting frá Nobilia, gráborðplata, sturta með sturtugleri, upphengt salerni, handklæðaofn.Sérgeymsla í sameign merkt 0001: 16,9 fm, málað gólf.35,9 fm bílskúr fylgir eigninni. Innangengt í bílskúr úr sameign. Bílskúr er staðsettur við hlið innangs norðan megin. Allar nánari upplýsingar veitir:Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/b.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða Nánar um húsið: Sogavegur 73-75 er þriggja hæða hús með 19 íbúðum auk kjallara með geymslum og bílastæðum. Húsið er steinsteypt en hluti útveggja á suðurhlið 3. hæðar eru úr timbri. Húsið er eingangrað að utan og klætt með báru-aluzinkklæðningu. Skjólveggir eru lerkiklæddir. Þakið er létt timburþak með þunnum loftrásum og einangrað milli sperra á hefðbundinn hátt. Gluggar eru timbur/ál. Innréttingar og skápar eru Nobilia frá Trésmiðju GKS og eldhústæki frá Bræðrunum Ormsson. Parket og innihurðir eru frá Birgisson. Samstæður til loftræstingar í hverri íbúð. Forhitari er á neysluvatni.Byggingaraðili er Húsvirki hf. Arkitekt hússins eru THG Arkitektar ehf. Raflagnahönnun er unnin af Frumu ehf. Ferill ehf. verkfræðistofa sá um burðarþols- og lagnahönnun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6% 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. 5. Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á.