ALDA fasteignasala og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna 98,7fm, 4 herbergja nýuppgerða, vel skipulagða og bjarta íbúð að Kleppsveg 40, 105 Reykjavík. Eignin er nýuppgerð með nýrri eldhúsinnréttingu með innbyggðum tækjum, nýtt bað með nýjum tækjum, nýjir skápar í öllum herbergjum ásamt nýju park... Sýna meira
ALDA fasteignasala og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna 98,7fm, 4 herbergja nýuppgerða, vel skipulagða og bjarta íbúð að Kleppsveg 40, 105 Reykjavík. Eignin er nýuppgerð með nýrri eldhúsinnréttingu með innbyggðum tækjum, nýtt bað með nýjum tækjum, nýjir skápar í öllum herbergjum ásamt nýju parketi á gólfi í öllum rýmum að undanskyldu baðherbergi og anddyri sem eru flísalögð. Glæsilegt útsýni er til norðurs úr eldhúsi og barnaherbergjum út á esjuna og til sjávar. Þá er mjög fallegt útsýni út um stóra fallega glugga til suðurs úr stofu yfir Laugalækjarhverfið. Eignin skiptist í anddyri, eldhús með borðkrók, baðherbergi, rúmgóða og bjarta stofu með útgengi út á suður svalir og 3 svefnherbergi öll með fataskápum. Sér geymsla í kjallara. Glæsileg, björt og velskipulögð, nýuupgerð íbúð á vinsælum stað í Laugalækjahverfinu. Stutt í fjölbreytta þjónustu og verslun ásamt því að vera með Laugalækjaskóla og leikskólann Laugasól í göngufæri. Fyrir nánari upplýsingar eða bókun á skoðun, hafið samband við Hreiðar Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða Eignin Kleppsvegur 40 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-6336, birt stærð 98.7 fm. Þar af er íbúð merkt 02-06, skráð 93,3fm ásamt sérgeymslu merkt 00-30 skráð 5,4fm. Samtals 98,7fm.Nánari lýsing:Anddyri: Rúmgott. Flísar á gólfi.Baðherbergi: Nýuppgert með walk in sturtu með gleri, nýjum blöndunartækjum, innréttingu, upphengdu klósetti, vask og spegli með innbyggðri lýsingu. Flísalagt í hólf og gólf.Eldhús: Nýuppgert eldhús með borðkrók. Tæki innbyggð, ísskápur og uppþvottavél ásamt ofn í vinnuhæð. Fallegt útsýni út á Esjuna og til sjávar ú eldhúsglugga. Gott flæði frá eldhúsi til stofu.Stofa: Rúmgóð og björt með stórum fallegum gluggum. Mjög fallegt útsýni yfir Laugalækjahverfið til suðurs úr stofugluggum. Útgengt út á suðursvalir úr stofu. Hjónaherbergi: Rúmgott með tvöföldum fataskáp.Svefnherbergi II: Rúmgott barnaherbergi með tvöföldum skáp.Svefnherbergi III: Rúmgott barnaherbergi með tvöföldum skáp.Sérgeymsla: Geymsla í kjallara, 5,4fm.Sameign: Sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla í kjallara.Garður: Stór sameiginlegur tyrfður garður til suðurs.Húsið: Árið 2017 voru endurnýjaðar allar holræsalagnir í grunni og út fyrir hús. Einnig var jarðvegsskipt í kringum húsið og settar nýjar drenlagnir. Árið 2016 var húsið steypuviðgert og málað, steinn og tréverk og skipt um alla stofuglugga á suðurhlið auk nokkurra annara glugga. Árið 2013 var skipt um járn og pappa á þaki og tréverk í þakinu yfirfarið. Einnig er búið að setja eldvarnarhurðir í sameign. Nýlegt lyklakerfi.Falleg og vel skipulögð 4 herbergja íbúð í vinsælu hverfi í Reykjavík með fjölbreytta nærþjónustu, leik- og grunnskóla í göngufjarlægð.Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur .