*** Eignin er seld með hefðbundnum fyrirvörum ***ALDA fasteignasala kynnir í einkasölu 2ja herbergja, vel skipulagða og bjarta íbúð á fyrstu hæð að Kleppsveg 40, 105 Reykjavík.Björt og vel skipulögð íbúð í vel viðhöldnu fjölbýli á vinsælum stað í Laugalækjahverfinu. Stutt í fjölbreytta þjónustu og v... Sýna meira
*** Eignin er seld með hefðbundnum fyrirvörum ***ALDA fasteignasala kynnir í einkasölu 2ja herbergja, vel skipulagða og bjarta íbúð á fyrstu hæð að Kleppsveg 40, 105 Reykjavík.Björt og vel skipulögð íbúð í vel viðhöldnu fjölbýli á vinsælum stað í Laugalækjahverfinu. Stutt í fjölbreytta þjónustu og verslun, stutt í Laugardalslaug og Laugardalurinn ásamt því að vera með Laugalækjaskóla og leikskólann Laugasól í göngufæri. Nánari upplýsingar veitir Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, í síma 820-9322, eða Hafþór Örn, Löggiltur fasteignasali, í síma 699-4040, Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-6336, birt stærð 63.4 fm. Þar af er íbúð merkt 01-07, skráð 59,7 fm ásamt sérgeymslu merkt 00-33 skráð 3,7 fm. Samtals 63,4 fm.Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2023 skv. Þjóðskrá er 40.450.000krEignin skiptist í anddyri, eldhús, baðherbergi, rúmgóða og bjarta stofu með útgengi út á suður svalir og 1 svefnherbergi með fataskáp. Sér geymsla í kjallara.Nánari lýsing:Anddyri: Rúmgott með fataskápum Teppi á gólfi.Baðherbergi: Baðkar með sturtu,hvít innrétting með vaski. Flísalagt í hólf og gólf.Eldhús: Með hvítri innréttingu, dúkur á gólfi.Stofa: Rúmgóð og björt með stórum fallegum gluggum. Útgengt út á suðursvalir úr stofu. Teppi á gófiHjónaherbergi: Rúmgott með fataskáp. Teppi í gólfiSérgeymsla: Geymsla í kjallara, 3,7fm.Sameign: Sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla í kjallara.Garður: Stór sameiginlegur tyrfður garður til suðurs.Húsið: Verið er að endurnýja hita og neysluvatnslagnir í kjallara, áætluð verklok, Nóvember 2022. Þær framkvæmdir verða greiddar af seljanda.Árið 2017 voru endurnýjaðar allar holræsalagnir í grunni og út fyrir hús. Einnig var jarðvegsskipt í kringum húsið og settar nýjar drenlagnir. Árið 2016 var húsið steypuviðgert og málað, steinn og tréverk og skipt um alla stofuglugga á suðurhlið auk nokkurra annara glugga. Árið 2013 var skipt um járn og pappa á þaki og tréverk í þakinu yfirfarið. Einnig er búið að setja eldvarnarhurðir í sameign.Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð í vinsælu hverfi í Reykjavík með fjölbreytta nærþjónustu, leik- og grunnskóla í göngufjarlægð.Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: Hafþór Örn, Löggiltur fasteignasali, sími 699-4040, Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, sími 820-9322, Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.000 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALDA fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.