Heimili fasteignasala kynnir til sölu nýlega og fallega tveggja herbergja íbúð með aukinni lofthæð í nýlegu lyftuhúsi að Kirkjustétt 4, 113 Reykjavík. Íbúðin er skráð 72,5 fm að stærð og skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi auk rúmgóðrar geymslu sem er innan íbúðar. Í íbú... Sýna meira
Heimili fasteignasala kynnir til sölu nýlega og fallega tveggja herbergja íbúð með aukinni lofthæð í nýlegu lyftuhúsi að Kirkjustétt 4, 113 Reykjavík. Íbúðin er skráð 72,5 fm að stærð og skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi auk rúmgóðrar geymslu sem er innan íbúðar. Í íbúðinni eru nýlegar innréttingar, aukin lofthæð, innfelld lýsing í loftum og útgengt frá stofu á rúmgóðar svalir eignar þaðan sem njóta má fallegs útsýnis til fjalla. Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., Nánari lýsing.Anddyri. Rúmgott með aukinni lofthæð og rúmgóðum fataskáp. Á gólfi er parket. Stofa. Parket á gólfi, aukin lofthæð og útgengi á stórar sérsvalir eignar þar sem njóta má fallegs útsýnis yfir borgina.Eldhús. Er opnu rými með stofu, falleg nýleg innrétting með góðri vinnuaðstöðu, miklu skápaplássi og eyju þar sem er eldavél ofn og gufugleypir.Svefnherbergi. Rúmgott og bjart með góðum fataskápum, aukinni lofthæð og góðum glugga. Baðherbergi: Falleg hvít innrétting, gott skápapláss, tengi fyrir þvottavél, vegghengt WC, handklæðaofn og steyptur/flísalagður sturtuklefi. Á gólfi og á veggjum eru flísar. Geymsla: er innan íbúðar, rúmgóð með aukinni lofthæð. Á gólfi er parket. Við hönnun íbúðanna var lögð áhersla á að skapa björt og opin alrými með rúmgóðu eldhúsi og stofu. Sameign hússins er öll hin snyrtilegasta, í stigagangi er lyfta og á vesturgafli húseignarinnar eru stórar sameiginlegar svalir fyrir íbúa. Loks er húsið er einangrað með steinull og álklætt og því viðhaldslétt. Falleg og vel skipulögð íbúð í grónu hverfi þar sem stutt er alla helstu þjónustu og fallega náttúru. Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason lgfs., Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.