Trausti fasteignasala og Viktoría Rannveig Larsen löggiltur fasteignasali kynna glæsilega íbúð á annarri hæð við Kirkjustétt 4, 113 Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, geymslu innan íbúðar og alrými sem telur stofu og eldhús ásamt svölum sem snúa ... Sýna meira
Trausti fasteignasala og Viktoría Rannveig Larsen löggiltur fasteignasali kynna glæsilega íbúð á annarri hæð við Kirkjustétt 4, 113 Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, geymslu innan íbúðar og alrými sem telur stofu og eldhús ásamt svölum sem snúa í suður með fallegu útsýni. Aukin lofthæð er í íbúðinni eða um 2,9 m.Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands alls 82,5 fm þar af er íbúðin 76,1 fm og geymsla í sameign 6,4 fm.Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2025 verður kr. 55.500.000Nánari lýsing á eign:Forstofa: Gengið er inn í forstofu, þaðan er gengið inn að geymslu innan íbúðar og baðherbergi, síðan áfram inn íbúðina. Parket á gólfi. Eldhús og stofa: Snyrtilegt eldhús með fallegri hvítri innréttingu og dökkri borðplötu, mikið og gott skápapláss ásamt borðplássi. Uppþvottavél sem og ísskápur eru innbyggð. Stofan er síðan samliggjandi með eldhúsi en þó afstúkuð að hluta og er rýmið mjög bjart, útgengt er á suðursvalir. Parket á gólfi.Baðherbergi: Snyrtilegt með góðri innréttingu, sturtu og upphengdu salerni ásamt tengi fyrir þvottavél. Flísalagt að hluta.Svefnherbergi: Eru tvö og virkilega rúmgóð með fataskáp. Parket á gólfi. Sameign: Sér geymsla er staðsett á sömu hæð íbúðar, á jarðhæð er að finna tæknirými, hjóla- og vagnageymslu.Um er að ræða frábæra eign með góðu skipulagi og fallegu útsýni á besta stað í Grafarholtinu þar sem stutt er í náttúruna og alla helstu þjónustu, leikskóla og skóla.Allar nánari upplýsingar um eignina veita:Viktoría R. Larsen, Löggiltur fasteignasali í síma 6185741 eða á netfanginu Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.