Miklaborg kynnir: Vorbraut 1 - Einstaklega fallegt og vandað sjö íbúða fjölbýlishús á spennandi stað í Hnoðraholti í Garðabæ. Húsið er með einu stigahúsi með lyftu, sérgeymslur á jarðhæð og stæði í bílskýli fylgir öllum íbúðum, bílskúr fylgir tveimur íbúðum. Allar íbúðir eru 3ja herbergja með mismunandi skipulagi, tvær íbúðir á jarðhæð, þrjár á 2.hæð og tvær íbúðir á 3.hæð. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með sérsmíðuðum innréttingum í viðarliti sem ná til lofts frá Arens en án gólfefna, að undanskildum baðherbergjum og þvottahúsum sem skilast með flísum. Gólfsíðir gluggar og gólfhiti í öllum íbúðum. Svalalokun á fyrstu og annari hæð á suð-vestur horni hússins. Húsið stendur ofarlega á hæðinni og margar íbúðir með stórbrotnu útsýni.
Bókið einkaskoðun hjá Gabriel Mána Hallssyni lögg. fasteignasala í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Íbúð 101: Glæsileg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð, skráð stærð er samtals 114,8 fermetrar.
Forstofa/anddyri: Með stórum fataskápum til lofts.
Hjónaherbergi: Stórt herbergi með millivegg, fataherbergisgangur innan herbergis með fataskápa til lofts á heilum vegg.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum til lofts.
Alrými: Stórt og opið rými með eldhúsi og stórri stofu. Eldhúsið skilast með vönduðum tækjum frá AEG, stór eldhúseyja með helluborði. Gólfsíðir gluggar á tvenna vegu hleypa mikilli birtu í rýmið. Útgengt á 13 fm svalir/sérafnotareit sem snýr í suð-vestur.
Baðherbergi/þvottahús: Rúmgott baðherbergi með þvottahúsi inn af. Fallegar flísar á gólfi og veggjum að hluta til. Vegghengd salernisskál, walk-in sturta, handlaug felld ofan í borðplötu.
Sérgeymsla: 4,6 fermetra sérgeymsla á jarðhæð hússins fylgir.
Bílastæði: Sérmerkt stæði í bílageymslu á baklóð hússins fylgir.
Hnoðraholt er spennandi og vaxandi hverfi á góðum stað innan höfuðborgarsvæðisins nálægt helstu stofnbrautum. Stutt í náttúruna, Vífilstaði, Heiðmörk og góða golfvelli, íþróttahúsið Miðgarð, Smáralind og skóla.
Allar nánari upplýsingar veita:
Gabriel Máni Hallsson lögg. fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is
Kjartan Ísak Guðmundsson lögg. fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason lögg. fasteignasali í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu


























| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 02.09.2026 Nánar | 114,8 m² | 1.000.871 kr. | 114.900.000 kr. |
| 02.09.2026 Nánar | 136,3 m² | 1.099.780 kr. | 149.900.000 kr. |
| 02.09.2026 Nánar | 115 m² | 1.016.522 kr. | 116.900.000 kr. |
0101 ![]() | 3 | 114,80 m² | 114.900.000 kr. 2. september 2026 | - - |
0102 ![]() | 3 | 85,90 m² | 89.900.000 kr. 26. ágúst 2026 | - - |
| 3 | 176,20 m² | 219.900.000 kr. 28. febrúar 2026 | 205.000.000 kr. 17. apríl 2026 |
0201 ![]() | 3 | 115,00 m² | 116.900.000 kr. 26. ágúst 2026 | - - |
0302 ![]() | 3 | 136,40 m² | 149.900.000 kr. 26. ágúst 2026 | - - |
0202 ![]() | 3 | 123,20 m² | 129.900.000 kr. 26. ágúst 2026 | - - |
0203 ![]() | 3 | 98,10 m² | 104.900.000 kr. 4. mars 2026 | 99.500.000 kr. 12. maí 2026 |