Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í sölu Víkurmói 2 íb. 201, Selfossi. Góð þriggja herbergja, nýleg 98,9 fm íbúð á 2.hæð. Endaíbúð með sérinngangi. Þrjú svefnherbergi. Laus við kaupsamning. Snyrtileg sameign.
Nánari lýsing:Forstofa með glugga.
Eldhús og stofa í opnu rými. Eldhúsinnrétting með ljósri viðaráferð og hvítum efri skápum, Helluborð, bakaraofn, háfur, ísskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél
Svalahurð út á suður svalir.
Hjónaherbergi: með stórum fataskáp.
Tvö barnaherbergi með skápum.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og hluta veggja. Sturtuklefi, baðinnrétting með vaski og speglaskáp fyrir ofan, handklæðaofni og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: 4,6 fm innan íbúðar.
Harðparket á gólfum nema baðherbergi þar sem eru flísar. Hvítar innihurðar.
Sameign: hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Frágengin lóð malbikuð bílastæði, Búið er að setja upp hleðslustöðvar.
Húsið er byggt árið 2022 úr forsteyptum einingum.
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 steindor@husfasteign.is ,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.