M2 Fasteignasala & Leigumiðlun í síma 421-8787 kynnir: Glæsilegar íbúðir í lyftuhúsi við Víkurbraut 17 íbúð 101 (1.hæð) Íbúð 101 er 3.herbergja íbúð 104,8m² auk 7,3m² sérgeymslu í sameign, samtals birt flatarmál 112,1m². Eigninni fylgja 9,5m² yfirbyggðar svalir og sérmerkt stæði (0101-B17) í bílage... Sýna meira
M2 Fasteignasala & Leigumiðlun í síma 421-8787 kynnir: Glæsilegar íbúðir í lyftuhúsi við Víkurbraut 17 íbúð 101 (1.hæð) Íbúð 101 er 3.herbergja íbúð 104,8m² auk 7,3m² sérgeymslu í sameign, samtals birt flatarmál 112,1m². Eigninni fylgja 9,5m² yfirbyggðar svalir og sérmerkt stæði (0101-B17) í bílageymslu að auki. Íbúðin skilast fullbúin að innan með gólfefnum og tækjum. Veggir og loft Veggir eru annars vegar tvíklæddir gips veggir og hins vegar staðsteyptir útveggir einangraðir að utan. Allir veggir eru sandspartlaðir og málaðir með hvítri málningu. Loft eru slípuð, sandspörtluð og máluð hvít. Gólfefni Íbúðin eru með flísum á gólfum baðherbergis og þvottahúss, annars staðar er einnar stafa gæða harðparket. Fataskápar Fataskápar eru í forstofu og svefnherbergjum, allir fataskápar ná upp í loft. Hurðir Innihurðir og karmar eru hvítar með viðaráferð. Inngangshurð eru B30 með felliþröskuld. Eldhús Í vinnslu. Baðherbergi Innréttingin er dökk með Corian borðplötu og handlaug. Innbyggt blöndunartæki.Góður spegill fyrir ofan vask. Salernið er hvítt með innbyggðum vatnskassa. Glæsilegur flísalagður sturtubotn með niðurfallsrennu og glerhlið úr hertu gleri. Hitastýrð blöndunartæki með sturtusetti. Veggir eru flísalagðir upp í ca. 2 metra. Ljóskúpull í lofti og baklýstur spegill. Þvottahús Innrétting með stálvaski og einnar handar blöndunartæki. Gólfið er flísalagt með eins flísum og á baðherbergisgólfi. Þvottahúsið er loftræst. Ljóskúpull í lofti. Þvottavél og barkalaus þurrkari fylgja með. Gólf og hiti Öll gólf eru “tvöföld” þ.e.a.s. 20sm steypt burðarplata, hljóð og hitaeinangrun ásamt gólfhitakerfi þar yfir er ílögn úr anhydrit. Þannig næst mjög góð hljóðeinangrun á milli hæða. Hitakerfið er með varmaskipti og uppblöndun í hverri íbúð. Sjálfstæð hitastýring er fyrir hvert rými. Svalir Handrið úr áli með hertu öryggisgleri þar ofan á kemur glerlokun á brautum einnig með hertu öryggisgleri. Hitaspírall er í svalagólfi. Víkurbraut 17 , 18 íbúða fjölbýli Skilalýsing þessi fjallar einungis um meginatriði, en er ekki ætlað að vera tæmandi um einstök frágangsatriði, lýsingin er fylgiblað kaupsamnings. Almenn atriði Víkurbraut 17 er fjölbýlishús á 9 hæðum. Fyrst er bílageymslan með innkeyrslu frá Bakkastíg þá geymsluhæð með geymslum og einni íbúð, 1.-5. hæð með þremur íbúðum á hverri hæð og loks 6.-7. hæð með tveimur penthouse-íbúðum. Lyfta er í húsinu og nær hún frá bílageymslu og upp á 6. hæð. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með glæsilegum innréttingum, Corian borðplötum, einstafa harðparketi og flísum á gólfum og glæsilegum AEG heimilistækjum (ofn, helluborð, uppþvottavél, ísskáp, þvottavél og þurrkara) og glerlokuðum svölum (á ekki við íbúð 001). Aðalhönnuður er Arkitektastofan ehf (Ormar Þór Guðmundsson). Bílageymsla (-1. hæð) Í kjallara hússins er bílageymsla með stæðum fyrir 18 bíla, tækjaklefi, sorpgeymsla og tveir bílskúrar. Frá bílageymslu er innangengt að lyftu og stigahúsi. Geymsluhæð (0. hæð) Á þessari hæð er íbúð 001 sem er 3ja herbergja með stórum (76,3m²) hellulögðum séreignargarði með snjóbræðslu (þak yfir bílageymslu). Einnig 18 sérmerktar geymslur auk hjóla og vagnageymslu 1. hæð Anddyri er með póstkössum og mynddyrasíma, gólf flísalagt. Rafdrifnar rennihurðir með skynjurum eru fyrir anddyri. Þaðan er gengið að stiga, lyftu og inn á íbúðargang. Úr íbúðargangi er gengt í þrjár íbúðir. Tvær 3ja herbergja og ein 4ra herbergja. Allar íbúðirnar eru með glerlokuðum svölum. 2. - 5. hæð Á hverri hæð eru þrjár íbúðir. Tvær 3ja herbergja og ein 4ra herbergja. Allar íbúðirnar eru með glerlokuðum svölum. 6. hæð Á hæðinni eru tvær stórar og glæsilegar penthouse-íbúðir á 2 hæðum. Þeim báðum fylgja glerlokaðar svalir á 6. hæð en á 7. hæð fylgja báðum þessum íbúðum stórar hellulagðar þaksvalir með snjóbræðslu að auki. Í íbúðunum er steyptur stigi milli hæða. Ytri frágangur og lóð Húsið afhendist fullbúið að utan, lóð fullbúin svo og bílastæði. Að utan er húsið einangrað með steinull og klætt með flísum, báruáli og sléttu áli. Þak yfir 6. hæð og bílageymslu er steinsteypt með tvöföldum pappalagi, einangrun, hitaspíral og hellulagt er þar ofan á. Þak yfir 7. hæð sem er inndregin er klætt báruáli. Svalir eru steinsteyptar, með hitaspíral og innfrarauðum geislahitara. Handrið er úr áli og klætt hertu gleri sem er opnanlegt ofan handriðs. Handrið á bílageymsluhúsi og á þaksvölum er steinsteypt. Gluggar, svalahurðir og opnanleg fög eru málaðir trégluggar að innan með álfölsum að utan og þreföldu gleri. Aðalhurð er rafdrifin álhurð með skynjurum. Lóð afhent fullbúin, bílastæði malbikuð. Hellulagðar stéttar eru fyrir framan húsið og að anddyrum. Hitalögn er undir þeim. Rampur að bílageymslu er upphitaður. Sameign Öll sameign afhent fullbúin. Anddyri flísalagt, stigar og stigapallar eru teppalagðir. Sorpgeymsla, hjóla- og vagnageymsla er með epoxy á gólfum. Allir veggir og loft í sameign eru máluð. Hiti er í gólfum. Sérgeymslur Öllum íbúðum fylgja sérgeymslur á geymsluhæð (0.hæð). Þær afhendast málaðar og gólf lökkuð. Léttir veggir milli geymsla eru úr clickboard-plötum klæddum á blikkstoðir. Hurðir á geymslum eru yfirfelldar hvítar hurðir. Hillur fylgja öllum geymslum. Allar geymslur eru loftræstar með útsogi. Hiti er í gólfum. Bílageymsluhús Bílageymsla einangruð að utan með hita í gólfi. Vélræn loftræsting. Veggir og loft eru málaðuð. Gólf er vélslípað með niðurfallsrennu fyrir miðju. Hurð á bílgeymslu er úr einöngruðum samlokueiningum með sjálfvirkum opnara. Ein fjarstýring fylgir hverju stæði. Rafmagn og boðleiðir Útiljós verða á svölum og við útihurðir. Vatnsvarðir tenglar á svölum. Sjónvarps og tölvutenglar eru í öllum herbergjum. Ljósleiðari er í hverri íbúð. Sjónvarpskerfi er tengt við kapal (Kapalvæðing), ekki loftnet. Dyrasími í anddyri með myndavél, eitt mynddyrasímtæki er í hverri íbúð og tengidós fyrir annað í öllum hjónaherbergjum. Í húsinu er brunaviðvörunarkerfi. Verktakar og hönnuðir ByggingarverktakiHúsagerðin hf ArkitektArkitektastofan Innanhús ArkitektJeEs arkitektar VerkfræðingurVerkfræðistofa Suðurnesja PípulagnirBenni Pípari RafmagnNesraf MúrverkMúrhamar MálningÓlafur Már Ólafsson InnréttingarGrindin BlikkBlikksmiðja ÁG UndirverktakarFF verktakarVeist þú um einhvern sem þarf aðstoð við að selja eignina sína, gerðu tvennt. Segðu okkur frá þeim og þeim frá okkur ! Erum með mikið af fólki á skrá sem leitar eftir skiptum á bæði stærri og minni eign. Heimasíða okkar er fermetri.is M² Fasteignasala & Leigumiðlun sími 421-8787 Fletta í fasteignalista