Kjöreign fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík, sími 533-4040 kynnirKjöreign fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík sími 533-4040 kynnir góða efri hæð og rishæð við Víðimel, Reykjavík.Upplýsingar um eignina. Húsið er steinsteypt hús, kjallari, tvær hæðir og rishæð. Húsið virðist vera í ágætu ástandi að u... Sýna meira
Kjöreign fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík, sími 533-4040 kynnirKjöreign fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík sími 533-4040 kynnir góða efri hæð og rishæð við Víðimel, Reykjavík.Upplýsingar um eignina. Húsið er steinsteypt hús, kjallari, tvær hæðir og rishæð. Húsið virðist vera í ágætu ástandi að utan með steinsalla. Hæðin er að hluta endurgerð en rishæðin er nú í upprunalegri mynd en samkvæmt fyrirliggjandi ósamþykktun teikningum er áformað að lyfta rishæðinni og setja kvisti. Eftir breytingar á rishæðinni gæti hún nýst sem sér íbúð eða sem hluti af hæðinni. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og önnur sameign. Við endurbætur á hæðinni var skipt um lagnir, gólfefni, innréttingar baðherbergi og málun. Gluggar eru ekki nýir, en gler hefur verið endurnýjað eftir þörfum. Við endurgerð rishæðarinnar er áformað að stækka svalir hæðarinnar.Lýsing, hæðarinnar. Forstofa niðri, stigahús, setustofa/hol, eldhús, stofa, sjónvarpsstofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi, fataherbergi og svalir. Geymsla í kjallara. Rishæðin. Fjögur herbergi.Nánari lýsing, hæðin. Rúmgott og bjart stigahús. Nýleg teppi eru á stigahúsinu. Þegar komið er upp stigann er komið inn í mjög rúmgott hol/setustofu með gólfflísum og arni. Innaf holinu er herbergi. Rúmgott eldhús með nýrri innréttingu og Miele tækjum og er eldhúsið opið inn í stofuna. Á eldhúsbekkjum er marmari. Á eldhúsgólfinu eru flísar. Rúmgóð stofa. Glerhurð er inn í sjónvarpsstofuna með hurð út á suðursvalir. Rúmgott baðherbergi með glugga, allt endurgert með vönduðum tækjum og flísum. Baðherbergið er með baðkari og rúmgóðum sturtuklefa. Gólfhiti er í baðherberginu og í fataherberginu. Milli baðherbergisins og hjónaherberginu er fataherbergi. Rúmgott hjónaherbergi með skáp.Rishæðin. Í dag er rishæðin með þakgluggum (nokkrum endurnýjuðum) og skiptist rishæðin í fjögur herbergi og eru sérsmíðaðir skápar í tveimur þeirra. Samkvæmt fyrirliggjandi teikningum myndi rishæðin skiptist í; hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, sjónvarpshol og góðar svalir. Auðveldlega mætti nýta hæðina eftir breytingar sem séríbúð .ATH að teikningar eru ósamþykktar.Stærðir; Neðri hæðin er skráð skv. gildandi eignaskiptasamningi, hæðin 143,8 fm. og rishæðin er skráð 40,9 fm. Samtals 184,7 fm. Eignarhlutdeild í húsi er 42%.Samkvæmt fyrirliggjandi teikningum yrðu birtar stærðir; hæðin skráð 134,8 fm. stigahús skráð 4,4 fm. og rishæðin 69,4 fm. Heildarstærð skv. skráningartöflu yrði þá 208,6 fm.Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða . Vinsamlegast pantið skoðunartíma.Davíð Karl Wiium lögfræðingur og lögg. fasteignasali gsm. 847-3147 david@kjoreign.is Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar í síma 533-4040 eða Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 eða Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 eða Jón Bergsson lögm. og lögg. fasteignasali gsm. 777-1215 eða Davíð Karl Wiium lögfræðingur og lögg. fasteignasali gsm. 847-3147 eða Má bjóða þér frítt verðmat á þína fasteign án skuldbindingar?Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram komaí söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegirog sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.