LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN & SVEINN EYLAND LGF. S. 6900.820 KYNNA:Um er að ræða vel skipulagða, rúmgóða og bjarta, fjögurra herbergja 126.3 fm endaíbúð á fyrstu hæð á þessum vinsæla stað í Sjálandshverfinu í Garðabæ.Íbúð er með gluggum á þrjá vegu, gólfsíðir gluggar í stofurými og er ca. 55 fm afgirt ... Sýna meira
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN & SVEINN EYLAND LGF. S. 6900.820 KYNNA:Um er að ræða vel skipulagða, rúmgóða og bjarta, fjögurra herbergja 126.3 fm endaíbúð á fyrstu hæð á þessum vinsæla stað í Sjálandshverfinu í Garðabæ.Íbúð er með gluggum á þrjá vegu, gólfsíðir gluggar í stofurými og er ca. 55 fm afgirt sérverönd til suður og vesturs með íbúð, sér bílastæði í lokaðri bílgeymslu með íbúð, sérgeymsla íbúðar er á sömu hæð og íbúð.Íbúð var töluvert mikið endurnýjuð árið 2019.Húseignin er öll álklædd að að utan og því nánast viðhaldsfrí og er byggð af byggingarfélaginu BYGG, vandaðar innréttingar og fataskápar frá BRÚNÁS.EIGN SEM AÐ VERT ER AÐ SKOÐA.Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900.820 eða FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.Íbúð skiptist í:Forstofu, hol/alrými, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, sérgeymslu og stæði í lokaðri bílgeymslu.Afgirtur sérafnotareitur er ca. 55 fm sem að tilheyrir íbúð. Sameiginleg hjóla/vagnageymsla á hæðinni.Nánari lýsing á eign:Komið er inn í forstofu með innbyggðum þreföldum fataskáp.Hol/alrými þaðan sem gengið er í önnur rými íbúðar, fallegur veggskenkur í alrými sem að mun fylgja eign.Stofa er rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum, snyrtilegur sjónvarpsskenkur á vegg í stofu sem að fylgir eigninni, útgengt úr stofu á rúmgóða ca. 55 fm afgirta skjólgóða verönd sem að snýr til suðurs/vesturs.Borðstofa er samliggjandi stofu og tengist eldhúsi, bjartir og gólfsíðir gluggar á tvo vegu í borðstofu.Eldhús er með snyrtilegri eikarinnréttingu sem að hefur verið lökkuð svört, efri og neðri skápar og eru flísar á vegg milli skápa, góður búrskápur og gott geymslupláss í innréttingu, steinn er á borðum í eldhúsinnréttingu,keramikhelluborð með gufugleypi ofan við, ofn og örbylgjuofn er í vinnuhæð, öll eldhústæki eru frá AEG, innbyggð uppþvottavél í eldhúsinnréttingu sem fylgir með í kaupum, rúmgóður borðkrókur er í enda eldhúss með björtum glugga.Svefnherbergin í íbúð eru þrjú og eru öll nokkuð rúmgóð, tvöfaldir fataskápar í barnaherbergjum og mjög stór og góður fataskápur í hjónaherbergiBaðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, baðkar og sturtuklefi er á baðherberginu, vegghengt salerni, eikarinnrétting sem að búið er að lakka, steinn á borði innréttingar, skápar og skúffuhirslur undir vask og speglaskápur á vegg, handklæðaofn á vegg.Þvottaherbergi er með nýlegri innréttingu þar sem að búið er að koma fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, geymsluskápur við hlið véla og skápur undir vaski í innréttingu.Sérgeymsla með hillum í sameign, (á sömu hæð og íbúðin). Sameiginleg hjóla/vagnageymsla framan við geymslu og er útgengt þaðan til suðurs í sameiginlegan garð.Sérstæði í lokaðri bílgeymslu merkt B022 og er búið að leggja fyrir því að hægt sé að setja upp rafhleðslustöð í bílastæði.Gólfefni: Eikparket og flísar á gólfum íbúðar.Árið 2019 var farið í endurbætur á íbúð en þá voru:-Innréttingar, fataskápar og hurðir í íbúð lakkaðar og allar höldur polýhúðaðar, en innréttingar og fataskápar eru frá BRÚNÁS.-Mjög vönduð loftljós og lýsing (kastarar og brautir) frá PFAFF sett upp í íbúð.-Voal sunscreen rúllugardínur frá Álnabæ settar upp í allri íbúð.-Parket á íbúð var pússað upp og lakkað uppá nýtt.-Verönd stækkuð og skjólveggir hækkaðir.-Þá er nýlega búið að mála alla íbúðina.Húsið að utan er klætt með áli og því viðhaldslítið, húsið er í góðu ástandi að utan.Lóðin er snyrtilega frágengin með hellulögðum stéttum fyrir framan hús og malbikuðum bílastæðum. Á baklóð sem er tyrfð, er leikvöllur fyrir börn.Sameign hússins er öll mjög snyrtileg og til fyrirmyndar.Staðsetning eignarinnar er virkilega góð við opið svæði þaðan sem stutt er í leikskóla, ylströndina, Sjálandsskóla og fallegar gönguleiðir við sjóinn.Athygli er vakin á því skv. 2. mgr 14. gr. laga nr 70/2015 um sölu fasteigna að fasteignasali er tengdur seljendum fjölskylduböndum.-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA