Kristín Einars. lgf. og DOMUSNOVA kynna: Fallega, bjarta og vel skipulagða 72,9 fermetra 2ja herbergja íbúð á 1. hæð með suðursvölum og einkar breiðu sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í fallegu fjölbýlishúsi með lyftu á eftirsóttum stað í Mosfellsbæ. Gott útsýni úr stofu yfir hverfi... Sýna meira
Kristín Einars. lgf. og DOMUSNOVA kynna: Fallega, bjarta og vel skipulagða 72,9 fermetra 2ja herbergja íbúð á 1. hæð með suðursvölum og einkar breiðu sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í fallegu fjölbýlishúsi með lyftu á eftirsóttum stað í Mosfellsbæ. Gott útsýni úr stofu yfir hverfið og til fjalla.Samkv. FMR skiptist eignin í 64,4 fm íbúð og 8,5 fm geymslu.Eignin er hönnuð með tilliti til aðgengi hreyfihamlaðra og eru innihurðir breiðari en almennt er og sérbílastæði í bílakjallara einnig.Lýsing eignar:Forstofa, flísalögð og rúmgóð með góðum fataskápum.Í opnu rými er eldhús, opið við stofu/borðstofu. Fallegar ljósar viðarinnréttingar og hvítar með tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.Stofa, björt og rúmgóð með gluggum í tvær áttir og útgengi á rúmgóða verönd til suðvesturs og þaðan út á sameiginlega lóð hússins. Parket á gólfum.Svefnherbergi, afar rúmgott með góðum fataskápum. Parket á gólfum.Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, góðar innréttingar með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vegghengt wc., handklæðaofn og flísalögð sturta.Í kjallara hússins eru:Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu, merkt B-14. Stæðið hentar vel hreyfihömluðum, staðsett við inngang að lyftu í stigahús.Sér geymsla, 8,5 fermetrar að stærð.Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, mjög rúmgóð og snyrtileg.Húsið er byggt árið 2017, múrað að utan og málað og lítur mjög vel út. Gluggar eru ál/tré gluggar.Lóðin, er fullfrágengin og aðkoma að húsinu er mjög góð með fjölda malbikaðra bílastæða. Staðsetning eignarinnar: Skipulag hverfisins er nútímalegt og mjög fjölskylduvænt, með góðum grunnskóla og tveimur leikskólum sem staðsettir verða í auganu í miðju hverfisins. Lítil bílaumferð verður á svæðinu og lágur umferðarhraði. Útsýni úr íbúðum Vefarastrætis 32-38 er einstaklega fallegt, þar sem sér vel yfir Álafosskvosina til austurs, suðurs og vesturs. Nánari upplýsingar veitir:Kristín Einarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.894 3003 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.