Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 70,0 m2, 2ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi af svalagangi í nýlegu 4ra. hæða lyftuhúsi við Vefarastræti 19 í Mosfellsbæ. Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega. Stórar svalir í suðurátt. Gott skipulag. Fallegar innréttin... Sýna meira
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 70,0 m2, 2ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi af svalagangi í nýlegu 4ra. hæða lyftuhúsi við Vefarastræti 19 í Mosfellsbæ. Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega. Stórar svalir í suðurátt. Gott skipulag. Fallegar innréttingar. Fallegt harðparket og flísar eru á gólfum. Búið er að fá samþykki fyrir að setja upp svalalokun á svalir sem eigendur greiða sjáfir fyrir.Íbúðin skiptist í svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla á jarðhæð. Frábær staðsetning. Fallegt umhverfi og stutt í ósnorta náttúruna. Húsið er hannað og teiknað Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar og var byggt árið 2017 af Byggingarfélaginu Bakka ehf. Birt stærð eignarinnar eru 70,0 m2, þar af íbúð 64,3 m2 og sérgeymsla 5,7 m2. Smelltu hér til að fá söluyfirlit sentNánarilýsing:Forstofa: Er með fataskápum og flísum á gólfi.Svefnherbergi: Er með fataskápum og harðparketi á gólfi.Baðherbergi/þvottaherbergi: Er flísalagt með baðinnréttingu, vegghengdu salerni, sturtu og innréttingu fyrir þvottavél og þurkara. Gluggi er á baðherbergiEldhús, stofa og borðstofa: Er í björtu opnu rými með harðparketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg L-laga innrétting. Í innréttingu er blástursofn, helluborð og háfur. Úr stofu er gengið út á stórar svalir í suðurátt.Geymsla: Sérgeymsla er í sameign á jarðhæð. 5,7 m2 geymsla.Hjóla- og vagnageymsla: Er í sameign á jarðhæðVerð kr. 46.500.000,- Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.Einnig er hægt að ná í Svanþór í síma 698-8555, og Sigurð í síma 899-1987, .Fasteignasala Mosfellsbæjar, Þverholti 2, Mosfellbæ. Opið frá kl. 9-17 alla virka dagaHeimasíða Fasteignasölu MosfelsbæjarFasteignasala Mosfellsbæjar á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.