Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteignasali co FRÓN fasteignamiðlun sýnir eignina s. 897-1212. finnbogi@fron.is
Falleg og vönduð 2ja herbergja neðri hæð í litlu fjölbýli með sér inngangi, að Unnardal 3, í Njarðvík, stærð 76,2 fm netto. Mjög vel staðsett íbúð sem hentar vel fyrir barnafólk. Innréttingar eru frá HTH og eldhústæki frá AEG.
2 rúmgóð svefnherbergi. Miðíbúð. Rúmgóð verönd, sem snýr í suðvestur. Útsýni af þeim.
Nánari lýsing.Forstofa er flísalögð með stórum og góðum forstofuskáp.
Svefnherbergi: Er með glugga. Það er rúmgott, harðparket á gólfi og góðir hvítir fataskápar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með gráum flísum. Hvít innrétting með speglaskáp, upphengt salerni, handklæðaofn og "walk in" sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús: Er hvít HTH innrétting með silestone-steini á borð. Bökunarofn í vinnuhæð, niðurfelldur vaskur og uppþvottavél innbygð í innréttingu. Harðparket á gólfi.
Stofa: er opin með eldhúsi. Harðparket á gólfi. Útgengi á mjög rúmgóðar, flott verönd með útsýni.
Geymsla, inna forstofu, með glugga. Parket á gólfi. (Mögulegt að nota sem herbergi)
Íbúðin er ný máluð að hluta. Sameiginleg
hjóla og vagnageymsla.
Góð eign sem vert er að skoða. Gengi beint inn af hellulögðu
gangstíg sem er með hita- og stnjóbræðslu.Í göngufæri við Stapaskóla og 20 mín fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Skv. viðbótarskiptasamningi á hver íbúð sér bílastæði. Þessi íbúð á stæði næst inngangi. Auk þess eru þrjú stæði sameiginleg, fyirr hvorn matshluta.
Eign: 0102 Unnardalur 3B Fasteignanúmer F2506544 Eignin er tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð matshlutans, merkt 0102, birt stærð 76,2 m². Eigninni tilheyrir sérnotaflötur á lóð sem er breidd íbúðar og nær 3 m. út frá húsi að aftan (sjá grunnmynd fyrstu hæðar). Eignin er merkt með appelsínugulum lit á teikningum. Birt stærð séreignar 0102 mhl 02: 76,2m² Eign 0102 tilheyra eftirfarandi hlutfallstölur Hlutfallstala í sameign allra mhl 02: Hlutfallstala í lóð: Hlutfallstala í hita mhl 02: 14,63% 7,32% 14,70%
Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteigna- skipa og fyrirtækjasali og lögg. leigumiðlari hefur starfað við fasteignasölu í 40 ár og er eigandi af FRÓN fasteignamiðlun. Sérhæfing í sölu fasteigna, hótela, fyrirtækja, skipa, lands og bújarða. Lögn reynsla af veðmötum á fasteignum og fyritækjum. Einnig í fjármálum heimilanna og í rekstri fyrirtækja. Leigumiðlun fasteigna, íbúða og atvinnuhúsnæðis.