Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími: 588-4477 og Hrafnhildur Björk Baldursdóttir löggiltur fasteignasali, sími: 862-1110, kynna: afar skemmtilega 103,8 fm 3ja herbergja íbúð á 4. og efstu hæð í lyftuhúsi ásamt bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi. Gengið inn í íbúðina af lokuðum svalagangi. Örstutt... Sýna meira
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími: 588-4477 og Hrafnhildur Björk Baldursdóttir löggiltur fasteignasali, sími: 862-1110, kynna: afar skemmtilega 103,8 fm 3ja herbergja íbúð á 4. og efstu hæð í lyftuhúsi ásamt bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi. Gengið inn í íbúðina af lokuðum svalagangi. Örstutt göngufæri í íþróttamiðstöðina Kórinn, Hörðuvallaskóla og hesthúsabyggðina við Heimsenda auk þess sem stutt er í fallega náttúru. Birt stærð íbúðarrýmis er 92,8 fm hjá Þjóðskrá Íslands og geymslu 11 fm, samtals 103,8 fm.Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun. Erum með fjölda kaupenda á skrá, sem eru að leita að sambærilegri íbúð í Kórahverfi.Eignin skiptist í: lokaða forstofu, eldhús, stofu, 2 svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, sérgeymslu í kjallara og bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi.Nánari lýsing: komið er inn í flísalagða forstofu, sem er með fatahengi og tveimur skóskápum. Stofan er með innfelldri lýsingu í lofti og úr henni er gengið út á svalir. Eldhúsið er með I-laga innréttingu beggja vegna gangs, efri og neðri skápum og opið er úr því inn í stofu. Svefnherbergin eru tvö og þau eru bæði parketlögð og með fataskápum. Þvottahúsið er flísalagt og með góðum skápum. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, það er með innréttingu, baðkari með sturtuskýli og handklæðaofni.Sérgeymsla í kjallara, birt stærð hennar er 11 fm hjá Þjóðskrá Íslands.Bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi (stæði nr. B17).Húsgjöld eru 21.045 kr. á mánuði.Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Hrafnhildur Björk Baldursdóttir löggiltur fasteignasali S: Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 862-1110. VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - EINGÖNGU LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SAMKVÆMT GREININGU CREDITINFO 2015 til 2020, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.