Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163/ ) kynnir bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð með sérinngangi af svölum á fyrstu hæð í snyrtilegu lyftuhúsi. Suðursvalir með fallegu útsýni að Bláfjöllum. Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara. Samkv. Þjóðskrá Íslands er íbúðin 101,7fm, sérgeymsla 1... Sýna meira
Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163/ ) kynnir bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð með sérinngangi af svölum á fyrstu hæð í snyrtilegu lyftuhúsi. Suðursvalir með fallegu útsýni að Bláfjöllum. Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara. Samkv. Þjóðskrá Íslands er íbúðin 101,7fm, sérgeymsla 10,9fm, samtals 112,6fm.Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús, sér geymsla í sameign auk sér bílastæðis í bílakjallara.Nánari lýsing: Forstofa er rúmgóð með góðu skápaplássi, flísar á gólfi, sérinngangur af svölum.Eldhús með vandaðri viðar innréttingu frá Axis, granít borðplata, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frystihólfi, flísar á gólfi. Stofan er mjög rúmgóð og björt með parketi á gólfi, útgengt út á rúmgóðar suður svalir úr stofunni. Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðu skápaplássi, parket á gólfi.Svefnherbergi rúmgott með góðum skápum, parket á gólfi. Baðherbergi með Axis innréttingu með granít borðplötu, upphengt salerni, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf.Þvottahús er innan íbúðarinnar, flísar á gólfi. Sérgeymsla í sameign er 10,4fm.Sérbílastæði í lokuðu bílastæðahúsi, sameiginleg þvottaaðstaða þar sem hægt er að þvo og ryksuga bílinn.Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg í kjallara. Gæludýr eru leyfð í húsinu. Gott aðgengi og stutt í alla þjónustu. Eignin er staðsett á eftirsóttum stað á höfuðborgarsvæðinu, þar sem öll þjónusta er fyrir hendi. Góð eign fyrir fólk með börn, þar sem örstutt er í Kórinn og alla íþróttaaðstöðu, hesthús og Guðmundarlund sem er fallegt útivistarsvæði. Verslun- og þjónusta (Hörðuvallaskóli) og leikskólar (Austurkór, Baugur og Kór) í göngufæri.Allar nánari upplýsingar veitir: Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662-6163 eða Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlufall af fasteignamati. 1.Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. 3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá 69.900kr.