** Opið hús miðvikudaginn 7. ágúst frá kl. 17:15 til 17:45 - Þrastarhöfði 4, íbúð 106 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - eða 862-9416 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 **Fasteignasala ... Sýna meira
** Opið hús miðvikudaginn 7. ágúst frá kl. 17:15 til 17:45 - Þrastarhöfði 4, íbúð 106 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - eða 862-9416 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg 122,1 m2, 5 herbergja endaíbúð á fyrstu hæð með stórri (ca. 30 m2) afgirtri timburverönd í suðvesturátt á vinsælum stað við Þrastarhöfða 4 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Búið er að setja upp tvær hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla á bílaplani. Frábær staðsetning. Grunnskóli, leikskóli, líkamsrækt og sundlaug eru á móti húsinu hinumegin við götuna. Einnig er mjög stutt á golfvöll.Nánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og stórum fataskáp.Stofa/Borðstofa er í rúmgóðu og björtu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á timburverönd.Eldhús er með fallegri innréttingu með miklu skápaplássi, steinn á borði. Í innréttingu er blástursofn, helluborð, háfur og nýleg innbyggð uppþvottavél . Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi.Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og parketi á gólfiSvefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfiSvefnherbergi nr. 4 er með parketi á gólfi. Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofni og baðkari með sturtuaðstöðu. Þvottahús er með vinnuborði með vaski, snúrum og flísum á gólfi.Geymsla er innan íbúðar með plastparketi á gólfi. Er í dag notuð sem sjónvarpsherbergi.Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð við hlið aðalinngangsins. Gegnheilt parket er á gólfum nema í geymslu en þar er plastparket og í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi eru flísar.Verð. 00.000.000,- Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.