Fasteignaland fasteignasala kynnir í einkasölu:
Fallega og vel skipulagða 4ra herbergja 111,3 fm íbúð við Þrastarás 18 sem er búið að endurnýja að innan.
Íbúðin er endaíbúð á annarri hæð í vesturenda hússins og er fallegt útsýni frá henni.
Sér inngangur er í íbúð að ofanverðu við húsið.
Eignin er frábærlega staðsett í göngufæri við Ástandsskóla, leikskóla (Tjarnarás og Stekkjarás) og fallegar gönguleiðir eins og á Ásfjall, Ástjörn, að Hvaleyrarvatni og fleiri útivistarperlum.
Næg bílastæði eru við húsið ásamt rafbílahleðslustöð.Nánari upplýsingar veitir:
Hörður Sverrisson lgf. í síma nr 777-5209 / 599-6705 eða hordur@fasteignaland.isNánari lýsingForstofa með góðum fataskáp með nýjum skápahurðum og fatagrind.
Þvottaherbergi er innaf forstofu með hillum.
Gangur með góðum geymsluskáp
Þrjú góð svefnherbergi með fataskápum með nýjum skápahurðum.
Baðherbergi er flísalagt og er með baðkari og sturtu í baðkar og góðri innréttingu.
Stofa, með útgengi á rúmgóðar útsýnissvalir í suðvestur.
Eldhúsið er opið í stofuna, falleg nýleg innrétting með steinborðplötu, ofn í vinnuhæð og nýtt helluborð.
Sér geymsla og hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð. Bílastæði fyrir neðan hús.
Gólfefni: Fallegt ljóst parket og flísar.
Húsélag stendur vel og engar framkvæmdir eru á áætlun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.