"Næst efsta hæð - Útsýni - Stæði í bílageymslu"Valhöll fasteignasala kynnir fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 5. hæð (næst efstu) í Sunnusmára 20 í nýja Smárahverfinu í Kópavogi. Gott útsýni er frá íbúðinni til vesturs. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Íbúðin nær í gegnum húsið og e... Sýna meira
"Næst efsta hæð - Útsýni - Stæði í bílageymslu"Valhöll fasteignasala kynnir fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 5. hæð (næst efstu) í Sunnusmára 20 í nýja Smárahverfinu í Kópavogi. Gott útsýni er frá íbúðinni til vesturs. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Íbúðin nær í gegnum húsið og er með glugga í austur og vestur. Húsið er byggt árið 2019 og því um mjög nýlega eign að ræða.Íbúðin er skráð 97,4 fm á stærð og þar af er geymslan 4,2 fm. Íbúðin er með rúmgóðu alrými sem telur stofu, borðstofu og eldhús, þvottahúsi, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi og anddyri. Geymsla í kjallara og stæði í bílageymslu.Þetta er nýleg og falleg íbúð með fínu útsýni sem vert er að skoða.Nánari lýsing:Anddyri: með fataskáp og parketi á gólfi.Stofa / borðstofa: í opanu alrými með eldhúsinu með útgengi á svalir sem snúa til vesturs.Eldhús: með hvítri og gráleitri innréttingu með miklu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp með frysti, áfastri eyju sem hægt er að sitja við og parketi á gólfi.Baðherbergi: með innréttingu, efri skápum, "walk in sturtu, handklæðaofni og flísum á gólfi og veggjum.Svefnherbergi I: með fataskápum og parketi á gólfi.Svefnherbergi I: með fataskápum og parketi á gólfi.Þvottahús: með innréttingu með skápum og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaski, vinnuborði og fllísum á gólfi.Geymsla: 4,2 fm sérgeymsla í kjallara.Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg í kjallara.Bílastæði: sérbílastæði í bílakjallara.Upplýsingar veitir:Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögmaður í síma 699-4407 eða í tölvupósti á netfanginu Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.