ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu – Suðurgata 24, Reykjanesbæ
Um er að ræða fallega og rúmgóða eign í þríbýlishúsi, staðsetta í hjarta Keflavíkur. Eignin er á efstu hæð með sérinngangi og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, m.a. góða útleigumöguleika.
*** Stúdíóíbúð í bílskúr (ósamþykkt) – góðir útleigumöguleikar *** Nýlega endurnýjað eldhús og baðherbergi *** Suðursvalir *** Gott geymslupláss í risi
Nánari upplýsingar veita: Halla Vilbergs Löggiltur fasteignasali, í síma 772-7930 og á netfanginu halla@allt.is Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5500, tölvupóstur pall@allt.is.
Skipulag eignar:
Gengið er upp steyptar tröppur að sérinngangi. Við tekur stigagangur með steinteppi og fallegu járnhandriði sem leiðir upp í íbúðina. Forstofa/gangur: Með aðstöðu fyrir fatahengi á palli. Eldhús: Smekklega endurnýjað með fallegri innréttingu þar sem viður og hvítur litur fara saman. Granítborðplötur, eyja með helluborði, bakaraofn í vegg, djúpur vaskur og innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi og nýlegu fataherbergi inn af. Svefnherbergi: Þrjú barnaherbergi, öll parketlögð. Fataskápar í einu þeirra. Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtu og glerþili, upphengt salerni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Ris: Gott geymslupláss með niðurdraganlegum stiga.
Rúmgóður bílskúr þar sem útbúin hefur verið stúdíóíbúð (ósamþykkt) með nýlegum gólfefnum og innréttingum. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara. Eignaskiptayfirlýsing er til frá árinu 1999.
Endurbætur og viðhald sem eignin hefur fengið. *** Eldhús endurnýjað árið 2006. *** Baðherbergi endurnýjað árið 2006. *** Rafmagn endurnýjað að hluta árið 2006. *** Þak hússins endurnýjað að hluta árið 2005. *** Húsið málað að utan árið 2017. *** Stúdíóíbúð útbúin í bílskúr um árið 2019 *** Þak húss endurnýjað að hluta árið 2005 *** Raflagnir endurnýjaðar að hluta árið 2006 *** Þak á bílskúr hefur verið endurnýjað að hluta.
Eignin er staðsett miðsvæðis í Keflavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir, heilbrigðisþjónustu og fjölbreytta afþreyingu.
Falleg og vel við haldin eign með mikla möguleika á góðum stað í Keflavík.