Fasteignasalan TORG kynnir: Mjög rúmgóð, falleg og björt 3herb íbúð á jarðhæð ásamt stæði í bílageymslu og góðri suður verönd með skjólveggjum á þessum eftirsótta stað í Sjálandi Garðabæjar. Um er að ræða eign sem er skráð skv f.m.r 106,7fm og þar af er geymsla 8,5 fm. Eignin skiptist í forstofu,... Sýna meira
Fasteignasalan TORG kynnir: Mjög rúmgóð, falleg og björt 3herb íbúð á jarðhæð ásamt stæði í bílageymslu og góðri suður verönd með skjólveggjum á þessum eftirsótta stað í Sjálandi Garðabæjar. Um er að ræða eign sem er skráð skv f.m.r 106,7fm og þar af er geymsla 8,5 fm. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö mjög rúmgóð herbergi, þvottahús, baðherbergi og geymslu, ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðin er laus við kaupsamning!Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: Nánari lýsing: Forstofa: komið er inn í opið rými með náttúrustein á gólfi og rúmgóðum forstofuskáp sem nær uppí loft. Stofa: stofa eignarinnar er rúmgóð og björt og rúmar einnig borðstofu. Parket er á gólfi, stórir gluggar og útgengt er út á rúmgóða, afgirta suðurverönd með skjólveggjum og góðum geymsluskáp. Eldhús: eldhúsið er rúmgott með fallegri eikarinnréttingu sem nær uppi loft. Tengi er fyrir uppþvottavél, ofninn er í vinnuhæð og keramikhelluborð með viftu yfir. Flísar eru á milli efri og neðri skápa og náttúrusteinn á gólfi. Svefnherbergi: herbergin eru tvö, bæði mjög rúmgóð með parketi á gólfi og miklum fataskápum sem ná uppí loft. Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með eikarinnréttingu og gráum borðplötum. Baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni og handklæðaofn. Þvottaherbergi: innan íbúðar er þvottaherbergi með náttúrustein á gólfu, vinnuborði, vaski, hillum og skáp. Geymsla: í sameign er sér geymsla sem fylgir eigninni og einnig stæði í lokaðri bílageymslu ásamt hjóla og vagnageymslu og dekkjageymslu.Niðurlag: Þetta er virkilega rúmgóð og falleg eign með suðurverönd í góðu fjölbýlishúsi í Sjálandi Garðabæjar þar sem stutt er út í fallega náttúru, skóla og leikskóla. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.