Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega og vel skipulagða 3ja herbergja 107,4 fermetra íbúð á jarðhæð með viðarverönd til suðurs og sér bílastæði í bílageymslu í góðu litlu fjölbýlishúsi með lyftu við Strandveg í Garðabæ.Lýsing eignar:Forstofa, flísalögð og með fataskápum.
Sjónvarpshol, parketlagt og rúmgott.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með útgengi á skjólsæla viðarverönd til suðurs og þaðan á sameiginlega lóð.
Eldhús, opið við stofu að hluta, parket- og flísalagt og með stórri borðaðstöðu við útbyggðan glugga til suðurs. Fallegar eikarinnréttingar með flísum á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél.
Þvottaherbergi, innaf eldhúsi, er flísalagt og með innréttingu með vaski.
Svefngangur, parketlagður.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, innrétting, handklæðaofn, vegghengt wc. og baðkar með sturtuaðstöðu.
Barnaherbergi, parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Hjónaherbergi, parketlagt og stórt með miklum fataskápum.
Í kjallara hússins eru:Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu þar sem tengt hefur verið fyrir rafhleðslustöð.
Sérgeymsla, 7,2 fermetrar að stærð.
Sameiginleg hjólageymsla, með útgengi á lóð.
Húsið að utan lítur vel út og sameign er öll mjög snyrtileg og vel umgengin.
Staðsetning eignarinnar er góð í Sjálandinu í Garðabænum.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is