Lind fasteignasala og Arinbjörn Marinósson lgf kynna virkilega fallega þriggja herbergja íbúð steinsnar frá miðbæ Akureyrar. Fasteignamat 2027 er kr. 49.350.000
*** Mikið endurnýjuð eign sem þó hefur fengið að halda í gamla stílinn*** *** Góðir útleigu möguleikar*** *** Frábær staðsetning ***
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðastliðnum árum og má þar helst nefna: - Rafmagn tekið í gegn og sett ný rafmagnstafla - Allar pípulagnir í íbúðinni voru endurnýjaðar, að hitaveitugrind í kjallara og nýjir miðstöðvarofnar settir. - Eikar plankaparket lagt á alla íbúðina og nýtt teppi á stiga. Einnig var styrking sett í gólf í eldhúsi/stofu rými. - Eldhús var gert upp og nýri eldhúsinnréttingu komið fyrir. - Þak endurnýjað að hluta og tveir þakgluggar endurnýjaðir. - Baðherbergi alveg gert upp og allt sett nýtt þar inn bæði innrétting og tæki
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma.