LAUS VIÐ KAUPSAMNINGFyrir nánari upplýsingar og til að bóka skoðun:Ólafía Ólafsdóttir - Löggiltur fasteignasali, sími 8988242, tölvupóstur Fanney Dögg Jensen - aðstoðarmaður fasteignasala, sími 8690512, tölvupóstur Lögheimili Eignamiðlun kynnir í einkasölu eignina Strandgötu 32, 220 Hafnarfirði, ...
Sýna meira
LAUS VIÐ KAUPSAMNINGFyrir nánari upplýsingar og til að bóka skoðun:Ólafía Ólafsdóttir - Löggiltur fasteignasali, sími 8988242, tölvupóstur Fanney Dögg Jensen - aðstoðarmaður fasteignasala, sími 8690512, tölvupóstur Lögheimili Eignamiðlun kynnir í einkasölu eignina Strandgötu 32, 220 Hafnarfirði, nánar tiltekið eign merkt 04-01. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 227-3997, birt stærð 101.2m2.Íbúðin er staðsett á þriðju og fjórðu hæð í gamla Alþýðuhúsinu í miðbæ Hafnarfjarðar. Íbúðin skiptist í forstofu, fatahengi/geymslu og herbergi á neðri hæð og stofu, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi og 2 svalir á efri hæð, aðrar í austur og hinar í vestur. Efri hæð er að hluta til undir súð. Húsið var upphaflega þrjár hæðir og var byggt árið 1923 en fjórðu hæðinni var bætt við árin 2005/2006. Skemmtileg eign í hjarta Hafnarfjarðar sem býður upp á marga möguleika!Nánari lýsing:Forstofa: Gengið er inn í forstofu á þriðju hæð hússins. Fatahengi/geymsla er undir stiganum sem liggur upp á efri hæð íbúðarinnar. Stofa: Á efri hæð er gengið inn í bjarta stofu með arinn á hægri hönd. Á vinstri hönd er stallur yfir uppteknu lofti þriðju hæðar. Útgengt er út á svalir sem snúa austur í átt að Strandgötu.Eldhús: Rúmgott eldhús með veglegri innréttingu og stórri gaseldavél. Stór ísskápur með frysti fylgir ásamt uppþvottavél.Hjónaherbergi: Á efri hæð. Stór harmonikkuhurð er inn í hjónaherbergið og úr því er útgengt út á 24,6 fm vestur þaksvalir með sjávarútsýni . Herbergi 2: Á efri hæð og með fatahengi. Herbergi 3: Á neðri hæð, við hlið forstofu. Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með upphengdu salerni, baðinnréttingu með vaski, baðkari og þvottaaðstöðu. Geymsla: Er undir súð og er aðgengileg inn af stofu, en auk hennar er óskráð geymslurými upp á stallinum í stofunni. Svalir: Tvennar svalir fylgja eigninni, annars vegar svalir sem eru á milli kvista fjórðu hæðarinnar og snúa austur út að Strandgötu og hins vegar stórar þaksvalir með sjávarútsýni sem snúa til vesturs og gengið er út á úr hjónaherbergi. Stóru svalirnar eru með kaldri útigeymslu.Gólfefni: Parket og flísar eru á gólfum og teppi í stiga.Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð. Stigahús er teppalagt.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjöld af kaupsamningi miðast við hlutfall af heildarfasteignamati - almennt 0,8 % , 04% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.