STOFN Fasteignasala kynnir: Til sölu fallega og vel skipulagða þriggja herbergja 88,2 fm. útsýnisíbúð á 5. hæð við Sólheima 27, 104 Reykjavík. Íbúðin er með tvennar svalir, eina út frá hjónaherberginu sem snýr í suðvestur og stærri svalirnar út frá stofu í suðaustur með einstaklega fallegu útsýni yf... Sýna meira
STOFN Fasteignasala kynnir: Til sölu fallega og vel skipulagða þriggja herbergja 88,2 fm. útsýnisíbúð á 5. hæð við Sólheima 27, 104 Reykjavík. Íbúðin er með tvennar svalir, eina út frá hjónaherberginu sem snýr í suðvestur og stærri svalirnar út frá stofu í suðaustur með einstaklega fallegu útsýni yfir borgina, fjöllin og víðar. Tvær geymslur fylgja eigninni, önnur geymslan er á sömu hæðinni, hin geymslan er á neðstu hæð húsins. Nýlegu myndavéla-dyrasími, tvær nýlegar lyftur í húsinu og er öll sameignin mjög snyrtileg. Búið er að setja upp hleðslustöðvar á bílaplanið fyrir rafmagnsbíla.Húsið hefur verið mikið endurnýjað undanfarin ár. Húsið var múrviðgert og málað árið 2020. Búið er að endurnýja glugga á austurhlíð íbúðar og víðar í húsinu, ásamt svalardyrum á austur-svölum íbúðar. Þakpappi var endurnýjaður árið 2020. Árið 2023 var lýsing við bílastæði og hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla settar upp. Þá er líka búið að endurnýja báðar lyfturnar í húsinu ásamt því að sett var upp myndavéla-dyrasíma kerfi. Svalahandrið hafa verið endurnýjuð og handrið á útsýnissvölum 12. hæð. Allar stéttar við hús endurnýjaðar og sett snjóbræðsla undir. Smellið hér til að fá söluyfirlit um eigninaSkipting eignar: Forstofa, hol, stofa, eldhús, hjónaherbergi, svefnherbergi og baðherbergi með glugga, tvær sérgeymslur fylgja eigninni, hjóla og vagnageymsla innan sameignar.Lýsing eignar: Gangur/ hol: Komið er inn gang með parket á gólfi, fatahengi og innbyggður fataskápur ásamt aðgengi inn í önnur rými íbúðar. Góð birta kemur inn ganginn frá stofu sem er með gólfsíðum gluggum. Svefnherbergi: Ágætis herbergi, hurðarveggurinn var fjarlægður, auðvelt er að breyta í fyrrahorf, parket á gólfi. Hjónaherbergi: Með innbyggðum fataskáp og útgengi út á litlar svalir í suðvestur. Mikið og flott útsýni er út frá gluggum inn í báðum herbergjunum. Baðherbergi: Nýlegt með flísum á gólfi og hvítum flísum á veggjum. Upphengt salerni, baðinnrétting með handlaug og spegil þar fyrir ofan. Baðkar með sturtu-aðstöðu og opnanlegur gluggi. Eldhús: Með snyrtilegri innréttingu eldavél, U-laga innrétting með glugga í vestur átt sem gefur birtu inn og mikið og fallegt útsýni. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu, tengi fyrir þvottavél er til staðar í eldhúsi. Stofa og borðstofa í opnu sameiginlega alrými með eldhúsinu gólfsíðum gluggum og svaladyr út á stórar svalir sem snúa til suðurs. Einstaklega mikið og flott útsýni yfir borgina, fjöllin og víðar. Stofan er rúmgóð og björt með parket á gólfi.Tvær sér geymslur fylgja íbúðinni, önnur geymslan sú minni er á sömu hæð og íbúðin, hin geymslan sem stærri er á neðstu hæð. Þvottahús, sameiginlegt þvottahús er í húsinu á efstu hæð hússins með miklu og flottu útsýni til allra átta. Húsfélagið er eigandi íbúðar 0101 (húsvarðaríbúð) en leigutaki þar er í hlutastarfi við húsumsjón og eftirlit. Góð staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi miðsvæðis í Reykjavík. Stutt er í alla þjónustu m.a. Glæsibæ, Skeifuna og útivistarsvæðið í Laugardalnum. Húsið er með 44 íbúum á 11 hæðum, sameiginlegt hjóla og vagnageymsla í kjallara og þvottahús og þurrkaðstöðu á 12. hæð.Húsið er teiknað af Guðmundi Kr. Guðmundssyni Arkitekt sem hefur fengið mikið lof fyrir fallega hönnun.Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson Löggiltur fasteignasali - leigumiðlari í sími 661 7788 eða netfang: Við höfum Heilindi - Dugnaður - Árangur að leiðarljósi.Ef það er eitthvað sem ég get gert fyrir þig / ykkur í sambandi við kaup eða sölu á fasteign þá er heiður fyrir okkur að vera ykkur innan handar.Ert þú að fara selja og vantar traustann fasteignasala? Þá er ég hér fyrir þig, hafðu samband í síma 661-7788. Ég býð þér/ ykkur frítt verðmat.