Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í einkasölu: Fallegt og vel skipulagt 4ra herbergja endaraðhús á Selfossi. Eignin telur opið og bjart stofu og eldhúsrými, 2-3 svefnherbergi, gott baðherbergi, sér þvottahús, hol, anddyri og geymsluloft. Stór lóð með stórri sólríkri verönd. Eign sem vert er að skoða.
Nánari lýsing:
Anddyri: Rúmgott anddyri með flísum á gólfi.
Stofa: Fallegt og bjart rými, parket á gólfi og útgengi á stóra timburverönd / lóð.
Eldhús: Opið við stofuna. Góð innrétting og borðrkókur, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi og fataskáp
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Skráð geymsla, nýtist vel sem herbergi, stór gluggi og parket á gólfi.
Baðherbergi: Flíslagt, þar er góð innrétting og góð sturta með einhalla og gleri.
Þvottahús: Sér innan íbúðar með innréttingu, innangengt á geymsluloft.
Lóð: Stór og þökulögð, Sólpallur sólríkur og fínn, útiskúr á baklóð.
Þetta er falleg og vel skipulögð eign í barnvænu hverfi á Selfossi. Eignin getur verið laus fljótlega.Nánari upplýsingar veitir Atli S Sigvarðsson löggiltur fasteignasali í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.