Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu, bjarta, vel skipulagða og glæsilega 126,4 fermetra 3ja herbergja endaíbúð á 7. hæð með gluggum í þrjár áttir, tvennum svölum og glæsilegu útsýni til suðurs yfir Reykjanesið, út á sjóinn, að Bláfjöllum og víðar auk 24,8 fermetra sérstæðs bílskúrs... Sýna meira
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu, bjarta, vel skipulagða og glæsilega 126,4 fermetra 3ja herbergja endaíbúð á 7. hæð með gluggum í þrjár áttir, tvennum svölum og glæsilegu útsýni til suðurs yfir Reykjanesið, út á sjóinn, að Bláfjöllum og víðar auk 24,8 fermetra sérstæðs bílskúrs með hita, rafmagni og rennandi vatni í þessu vandaða og eftirsótta fjölbýlishúsi með lyftu sem ætlað er einungis fyrir 55 ára og eldri.Íbúðin er sem fyrr segir á 7. hæð hússins og eru einungis tvær íbúðir á hæðinni. Frá íbúðinni nýtur óviðjafnanlegs útsýnis til suðurs yfir að Reykjanesinu, út á sjóinn, að Bláfjöllum og víðar. Mikil sameign er í húsinu. Á 8. hæð hússins er sameiginlegur salur og á jarðhæð hússins er sameiginlegur veislusalur með eldhúsaðstöðu. Á jarðhæðinni eru einnig sameiginlegar snyrtingar, búningsklefar fyrir karla og konur með sturtuaðstöðu, gufubað, líkamsræktarsalur með tækjum og verönd með heitum potti. Á jarðhæð hússins eru bæði starfræktar hárgreiðslu- og snyrtistofa.Starfandi húsvörður er í húsinu. Lýsing eignar:Forstofa, flísalögð og rúmgóð. Geymsla, dúklögð og rúmgóð með hillum. Hol, parketlagt og með innbyggðum fataskápum.Svefnherbergi I, parketlagt og rúmgott með innbyggðum fataskápum og útgengi á svalir til norðurs.Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, innrétting með tengi fyrir þvottavél og flísalögð sturta með sturtuglerjum.Svefnherbergi II, parketlagt og rúmgott með innbyggðum fataskápum.Eldhús, opið við stofu og hol, parketlagt og með hvítum innréttingum með flísum á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél. Borðaðstaða er í eldhúsi.Samliggjandi stofur, mjög stórar, bjartar og parketlagðar með virkilega fallegu útsýni til suðurs að Reykjanesinu, út á sjóinn og yfir Kópavoginn, að Bláfjöllum, Bessastöðum og víðar. Svalir, úr stofu er útgengi á flísalagðar og rúmgóðar yfirbyggðar og opnanlegar svalir til suðurs. Frá svölum nýtur sama glæsilega útsýnisins.Á hæðinni er sameiginleg geymsla fyrir íbúðirnar tvær á hæðinni og er hún með hillum.Bílskúr er sá fyrsti í lengju tvö frá austri og er með rafmagni, mótor á hurð, hita og rennandi vatni. Hillur eru á veggjum í bílskúr að hluta.Rafhleðslustöðvar, eru orðnar tvær á bílaplani hússins og verða fjórar fljótlega. Tvö sameiginleg þvottaherbergi eru innan hússins en einnig er tengi fyrir þvottavél í baðherbergi innan íbúðarinnar.Sameign hússins er öll mjög snyrtileg og vel umgengin. Staðsetning eignarinnar er virkilega góð miðsvæðis í Reykjavík þaðan sem stutt er í verslanir og þjónustu. Lóðin er frágengin og malbikuð með fjölda bílastæða og góðri aðkomu. Hellulagðar gangstéttir norðan við húsið og tyrfð flöt til suðurs.Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu