PRODOMO fasteignasala kynnir í sölu virkilega skemmtilegt, bjart og vel skipulagt 103,2 fm raðhús á einni hæð með aukinni lofthæð að Sjávarborg 2F í Vogum.
Um er að ræða afar vel nýtt og fjölskylduvænt raðhús sem telur fjögur svefnherbergi (þar af eitt með skemmtilegu svefn-/geymslulofti), baðherbergi með þvottaaðstöðu og bjart alrými með aukinni lofthæð. Frá stofu er gengið út á verönd og aðkoman er snyrtileg með malbikuðu bílaplani og hellulagðri stétt.
***Eignin getur verið laus við kaupsamningNánari lýsingForstofa: Flísar á gólfi og góður forstofuskápur.
Eldhús: Snyrtileg innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi, bakarofni í vinnuhæð ásamt innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Stofa og borðstofa: Opið og bjart rými í samflæði við eldhús. Aukin lofthæð og stórir gluggar setja mikinn svip á rýmið. Parket á gólfi og beint útgengi á verönd.
Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Barnaherbergi I: Parket á gólfi, fataskápur og skemmtilegt geymslu- eða svefnloft sem nýtir lofthæðina frábærlega.
Barnaherbergi II: Parket á gólfi og fataskápur.
Barnaherbergi III: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi / þvottaaðstaða: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting við vask, upphengt salerni, sturta og innréttuð aðstaða fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Aðgengi er að sameiginlegri geymslu á lóð.
Að framan er bílaplan malbikað og stéttar hellulagðar. Að aftan er góð verönd með beinu aðgengi úr alrými.***Aukin lofthæð í alrými sem gefur mikla birtu og glæsilega rýmistilfinningu.
***Fjögur svefnherbergi, þar af eitt með svefnlofti/geymslulofti sem nýtist einstaklega vel.
***Fataskápar í öllum herbergjum.
***Útgengt á verönd úr bjartri stofu.
***Flísalagt baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
***Frágengið að framan: Malbikað bílaplan og hellulagðar stéttar.Frábærlega skipulagt og heillandi fjölskylduhús í Vogum þar sem hver fermetri er nýttur til hins ýtrasta!
***Sýnum samdægurs***Allar nánari upplýsingar veita:
Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
lilja@prodomo.is
Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
hakon@prodomo.is