EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN.Lögheimili Eignamiðlun kynnir í einkasölu: Sigtún 35. 105 Reykjavík sem er fimm herbergja, samtals 119,2 fermetra íbúðareign á fyrstu hæð í 4 hæða steinsteyptu fjölbýlishúsi frá 1948. Íbúðarhlutinn, samtals 116,1 fermetrar, merkt 0101 og 3,1 fermetra geyms... Sýna meira
EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN.Lögheimili Eignamiðlun kynnir í einkasölu: Sigtún 35. 105 Reykjavík sem er fimm herbergja, samtals 119,2 fermetra íbúðareign á fyrstu hæð í 4 hæða steinsteyptu fjölbýlishúsi frá 1948. Íbúðarhlutinn, samtals 116,1 fermetrar, merkt 0101 og 3,1 fermetra geymsla merkt 0003. Að auki fylgir eigninni skv. eignaskiptayfirlýsingu byggingaréttur fyrir bílskúr, en aðeins helmingur af bílskúr er samþykktur var í bygginganefnd Reykjavíkur, 14. apríl 1988 hefur verið byggður. Fylgir sá hluti íbúð 0201 en rétturinn til hins óbyggða hluta tilheyrir íbúð 0101, sem hér um ræðir. Húsið liggur norðan megin Sigtúns og samanstendur af 4 íbúðum, einni á hverri hæð.Íbúð 0101 skiptist í anddyri, 3 svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og tvær stofur. Öll íbúðin er parketlögð, utan forstofu sem er teppalögð og baðherbergis sem er flísalagt.Forstofa er teppalögð, góður þrefaldur skápur með speglahurðum við inngang.Eldhús er búið vönduðum innréttingum og tækjum. Spanhelluborð, tveir ofnar og gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp sem getur fylgt.Forstofuherbergi er parketlagt. Barnaherbergi er parketlagt, stórt og er gert ráð fyrir skápum.Hjónaherbergi er parketlagt, stórir skápar með innfelldri lýsingu.Baðherbergi er flísalagt. Hreinlætistæki frá Philippe Starck, góðar innréttingar og rúmgóð sturta.Stofur eru 2, báðar parketlagðar. Vandaðir skápar, áfastir vegg geta fylgt.Þvottahús er í sameign og er innangengt í sameign úr forstofu.Eigninni tilheyrir 3,1 fermetra geymsla í kjallara, merkt 0003 og byggingaréttur fyrir bílskúr.Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð. Hús er ný múrviðgert og steinað að utan. Þakkantur var steyptur upp, dren endurnýjað og skolplagnir endurnýjaðar út í götu. Gluggar eru upprunalegir og tvöfalt gler er í íbúðinni. Innan íbúðar hefur rafmagn verið endurnýjað að hluta í eldhúsi og á baðherbergi. Tvöfaldur ísskápur getur fylgt, uppþvottavél getur fylgt sem og upphengdir skápar í stofu.Smávægilegur hæðarmunur er á gólfum milli herbergja.Til stendur að ráðast í endurnýjun á þaki og mun seljandi standa straum af kostnaði samkvæmt tilboði.Allar nánari upplýsingar gefur: Heimir Bergmann löggiltur fasteignasali í síma 630-9000 eða Viltu frítt verðmat fyrir sölu? Get ég aðstoðað þig við sölu eða leigu íbúðar þinnar? Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 14 ára starfi við fasteignasölu á Íslandi.Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við mig eignum í sölu- eða leigumeðferð. Hringdu núna í síma 630-9000 og pantaðu tíma fyrir þína eign. Frekari upplýsingar: Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögheimili Eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Ábyrg þjónusta í áratug. Lögheimili Eignamiðlun var stofnuð 2007. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.