RE/MAX kynnir í einkasölu: Falleg og töluvert endurnýjuð 80,9 fm. þriggja herbergja íbúð á 1. hæð í góðu fjölbýlishúsi við Safamýri 42, Reykjavík. Íbúðin er skráð 77,3 fm. og skiptist í forstofu, opið rými, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og svalir. Sérgeymsla 3,6 fm. er staðsett í samei... Sýna meira
RE/MAX kynnir í einkasölu: Falleg og töluvert endurnýjuð 80,9 fm. þriggja herbergja íbúð á 1. hæð í góðu fjölbýlishúsi við Safamýri 42, Reykjavík. Íbúðin er skráð 77,3 fm. og skiptist í forstofu, opið rými, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og svalir. Sérgeymsla 3,6 fm. er staðsett í sameign ásamt sameiginlegu þvottahúsi. Eigninni fylgir bílskúrsréttur.Nýleg gólfefni og hurðar í íbúð, endurnýjað eldhús og baðherbergi. Tenglar og rofar endurnýjaðir ásamt rafmagnstöflu 2017. Íbúðin nýlega máluð og öll hin snyrtilegasta. Nýleg brunavarnarhurð inn í íbúð. Húsið hefur verið sprunguviðgert og málað, skólp og dren endurnýjað. Gluggar og gler að hluta. Skipt hefur verið um þakjárn og settur var hiti í stétt fyrir framan hús. Nýleg rafmagnstafla í sameign. Einnig hefur sameign verið yfirfarin, skipt um teppi og gólfefni í kjallara.Vel skipulögð og björt eign miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði ásamt allri helstu þjónustu.KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉRNánari lýsing:Eldhús er með nýlegri hvítri innréttingu með viðarborðplötu, helluborð, háfur og bökunarofn í vinnuhæð.Stofa og borðstofa er í opnu og björtu rými, útgengt er út á góðar vestur svalir.Svefnherbergin eru tvö, nýlegir fataskápar eru í hjónaherbergi.Baðherbergi hefur verið endurnýjað, falleg hvít vaskinnrétting með spegli og góðu skápaplássi, sturtubaðkar og upphengt salerni. Flísað í hólf og gólf.Sérgeymsla staðsett í sameign um 3,6 fm. að stærð.Þvottahús er sameiginlegt staðsett í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu.Bílastæði eru sameiginleg fyrir framan hús en bílskúrsréttur fylgir eigninni skv. eignaskiptayfirýsingu, merkt B4.Garður er sameiginlegur, stór og gróinn.Húsið var málað og sprunguviðgert um 2014. Skólp um 2012 og dren hefur verið endurnýjað, gluggar og gler endurnýjað að hluta. Hiti settur í gangstétt og skipt um þakjárn. Á árunum 2011/12 var skipt um teppi í stigagangi og gólfefni í kjallara. Einnig var rafmagnstafla í stigagangi endurnýjuð 2019. Brunavarnarhurðir inn í íbúðir endurnýjaðar 2021. Neysluvatnsgrind í stigagangi uppfærð 2019.Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, og Þórhallur Viðarsson, löggiltur fasteignasali.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.