Eignamiðlun kynnir:Mjög rúmgóð og vel skipulögð 188,9 fm efri sérhæð með bílskúr í fallegu 3-býlishúsi við Safamýri 27. Sér inngangur. Hæðin skiptist m.a. í hol, stofu, borðstofu, eldhús, fjögur herbergi, baðherbergi og snyrtingu. Íbúðin er skráð 158,5 fm og bílskúrinn 30,4 fm. Sér geymsla í kjallar...
Sýna meira
Eignamiðlun kynnir:Mjög rúmgóð og vel skipulögð 188,9 fm efri sérhæð með bílskúr í fallegu 3-býlishúsi við Safamýri 27. Sér inngangur. Hæðin skiptist m.a. í hol, stofu, borðstofu, eldhús, fjögur herbergi, baðherbergi og snyrtingu. Íbúðin er skráð 158,5 fm og bílskúrinn 30,4 fm. Sér geymsla í kjallara og sameiginlegt þvottahús. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni.Nánari uppl. veitir: Magnea S. Sverrisdóttir lg.fasteignasali s. 861 8511, Nánari lýsing: Komið er inn um sér inngang í flísalagða forstofu. Gengið er upp teppalagðan stiga. Stór gluggi er í stigaholi. Komið er á flísalagðan stigapall. Þar eru forstofuherbergi og snyrting. Herbergið er parketlagt. Snyrtingin er flísalögð og með glugga. Frá stigapalli er komið inn í rúmgott parketlagt hol. Stofan og borðstofan eru samliggjandi. Gólf er parketlagt. Svalir til vesturs eru útaf stofu. Eldhúsið er við hlið stofu. Upprunaleg innrétting er í eldhúsi. Gólf er flísalagt. Borðkrókur er í eldhúsi. Frá holi er komið í svefnálmu en þar eru þrjú herbergi og baðherbergi. Hjónaherbergið er parketlagt og með stórum skápum. Barnaherbergin eru dúklögð. Baðherbergið er flísalagt. Baðkar með sturtu í. Gluggi er að baðherbergi. Húsið var viðgert og málað fyrir um tveimur árum síðan. Árið 2012 voru skolplagnir endurnýjaðar og sett dren við hússið (sjá nánari lýsingu í gögnum frá verktaka sem sá um verkið)Frábær staðsetning. Örstutt í leikskóla, skóla, verslanir og alla helstu þjónustu.Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögumHeimasíða EignamiðlunarEignamiðlun á Facebook