Eignin er SELD með fyrirvara um fjármögnunTrausti fasteignasala og Guðbjörg G Sveinbjörnsdóttir lgf. kynna nýlega endurnýjaða og fallega 4ja herbergja íbúð í kjallara í sjarmerandi hverfi rétt við miðborg Reykjavíkur. Íbúðin er lítið niðugrafin og geymsla á sömu hæð fylgir eigninni. Stór sameiginle... Sýna meira
Eignin er SELD með fyrirvara um fjármögnunTrausti fasteignasala og Guðbjörg G Sveinbjörnsdóttir lgf. kynna nýlega endurnýjaða og fallega 4ja herbergja íbúð í kjallara í sjarmerandi hverfi rétt við miðborg Reykjavíkur. Íbúðin er lítið niðugrafin og geymsla á sömu hæð fylgir eigninni. Stór sameiginlegur garður. Stutt er bæði í Háskóla Íslands og leikskóla auk göngufæris í flesta helstu þjónustu. Tilvalin fyrsta eign. Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 77,6fm.Nánar um eignina:Hol með parketi. Stofa björt og rúmgóð með gluggum í 2 áttir og parket á gólfi.Eldhús með góðri innréttingu, eldavél, flísar á veggjum og parket á gólfi.Hjónaherbergi er mjög rúmgott með stórum innbyggðum fataskáp og parket á gólfi.Tvenn barnaherbergi sem eru jafnstór, með innbyggðum fataskáp og parket á gólfi.Baðherbergi með innangengri sturtu, snyrtilegri innréttingu, glugga, hita í gólfi og flísalagt í hólf og gólf. Geymsla íbúðar er á sömu hæð.Sameiginlegt þvottahús á sömu hæð.Íbúðin hefur öll verið mikið endurnýjuð, neysluvatnslagnir, rafmagnslagnir, parket, innihurðar, innréttingar og skápar. Sumarið 2020 voru rennur endurnýjaðar og þakkantar lagaðir. Nánari upplýsingar veita Ólafur Haukur Ólafsson, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 866-1242 eða á netfanginu og Guðbjörg G Sveinbjörnsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 899-5949 eða á netfanginu .Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.