Miklaborg kynnir: Glæsileg 4ra herbergja íbúð á 3ju hæð auk bílastæðis í lokuðum aðgangsstýrðum bílakjallara. Íbúðin er skráð tæplega 150 m2 og henni fylgja tvennar svalir. Lyfta opnast beint inn í íbúðina.
Austurhöfn er glæsileg bygging með metnaðarfullri hönnun á einstökum stað við Reykjavíkurhöfn. Í engu er til sparað, hvort sem litið er til innréttinga, tækja, þjónustu eða frágangs, að innan sem utan. Skjólgóður garður er rammaður inn af byggingunni. Með íbúðum í Austurhöfn hafa ný viðmið verið sett varðandi gæði. Á jarðhæð hússins er Hafnartorg gallery með úrval veitingastaða og verslana. Reykjavík Edition Hótel og Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús eru staðsett við hlið hússins, á lifandi höfn Austurbakkans við Hörputorg. Eignin býður upp á beinan aðgang að Reykjavík Edition fimm stjörnu hóteli, þar sem fyrsta flokks þjónusta, einstök aðstaða og veitingastaðir eru í hæsta gæðaflokki.
Íbúðin skiptist í: stóra forstofu, gestasnyrtingu, og þvottahús innangengt úr forstofu. Rúmt alrými, stofa og eldhús, Þá eru tvö svefnherbergi með rúmum skápum og aðliggjandi baðherbergi í báðum herbergjum. Sjónvarpsstofa getur vel nýst sem svefnherbergi eða skrifstofa. Alls eru þrjú baðherbergi í íbúðinni. Sérsmíðaðar innréttingar frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápum auk annarra fastra innréttinga. Blöndunartæki eru frá Dornbracht. Kvarts borðplötur eru við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyju er klætt marmaraflísum. Tæki í eldhúsi er af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Í eldhúsi eru Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, vaskur og blöndunartæki. Savant snjallheimiliskerfi frá Nordic Smart Spaces með vandaðri ljósa- og gardínustýringu eykur þægindi. Lagt er fyrir virku hljóðkerfi í öllum rýmum. Gegnheilt eikarparket er á allri íbúðinni. Í votrýmum eru flísar. Fullkomið loftræstikerfi með hljóðdeyfðum loftrásum er í íbúðinni. Íbúðin er á þriðju hæð og fylgir henni eitt bílastæði í lokaðari aðgangsstýrðri bílageymslu. Lyfta opnast beint inn í íbúðina, sem tryggir næði og þægilega aðkomu en úr lyftu er komið inn í stóra forstofu með fataskápum. Þar til hliðar er gestasnyrting og aðgangur að þvottahúsi með innréttingu og skolvaski. Gengið er inn í alrými með stóru eldhúsi með eldunareyju. Gólfsíðir gluggar eru í alrými sem veita mikla náttúrulega birtu. Tvennar svalir eru í íbúðinni, 5,7 m2 svalir sem snúa að inngarði og einnig eru 5,8 m2 svalir sem snúa í suðaustur. Lokaður sameiginlegur garður er á 2. hæðinni. Garðurinn er sólríkur og skjólsæll með fallegum gróðri, bekkjum og lýsingu. Garðurinn býður upp á einstaka upplifun í miðri borginni. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, tvö þeirra með sér baðherbergi með sturtum annað að auki með baðkari. Sérgeymsla er í kjallara að stærðinni 11,2 fermetrar. Tvær hjóla- og vagnageymslur eru í sameign. Mynddyrasími er fyrir utan útidyr. Anddyri er læst óviðkomandi umferð. Í húsinu öllu eru öryggismyndavélar. Leyfi er fyrir gæludýrahaldi í húsinu.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu





































| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 08.04.2026 Nánar | 145,6 m² | 1.466.346 kr. | 213.500.000 kr. |
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 14. apríl 2026 | 212.000.000 kr. |
| 26. ágúst 2021 | 149.000.000 kr. |
| 4 | 145,60 m² | 213.500.000 kr. 8. apríl 2026 | 212.000.000 kr. 14. apríl 2026 |
0509 ![]() | 4 | 197,50 m² | 260.000.000 kr. 23. febrúar 2022 | 260.000.000 kr. 4. maí 2022 |
0212 ![]() | 3 | 145,50 m² | 145.000.000 kr. 13. júní 2021 | 145.000.000 kr. 27. júlí 2021 |
0310 | - | - | - | 102.000.000 kr. 19. desember 2022 |
0311 | - | - | - | 103.000.000 kr. 23. júní 2021 |
0410 ![]() | 3 | 108,60 m² | 127.500.000 kr. 4. september 2021 | 127.500.000 kr. 29. september 2021 |
0409 ![]() | 2 | 80,90 m² | 139.900.000 kr. 15. apríl 2026 | - - |
0411 ![]() | 4 | 146,40 m² | 160.000.000 kr. 30. apríl 2021 | 158.000.000 kr. 11. nóvember 2024 |
0210 ![]() | 2 | 80,90 m² | 97.900.000 kr. 22. febrúar 2024 | 95.000.000 kr. 23. apríl 2024 |
0605 ![]() | 4 | 198,40 m² | 285.000.000 kr. 6. febrúar 2022 | 295.000.000 kr. 16. mars 2022 |
0211 ![]() | 3 | 106,90 m² | 99.500.000 kr. 26. maí 2021 | 140.000.000 kr. 20. ágúst 2024 |
0606 ![]() | 4 | 148,70 m² | 249.000.000 kr. 28. september 2023 | 230.000.000 kr. 15. nóvember 2023 |
0510 ![]() | 4 | 147,30 m² | 214.900.000 kr. 11. mars 2026 | 217.000.000 kr. 22. júlí 2022 |