ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:Snyrtilegt steinsteypt einbýlishús í grónu og skjólgóðu hverfi á Selfossi.
Eignin er alls 183,4m2 að stærð íbúðarhúsið er 129,8m2, gróðurhús 11,5m2 og sérbyggður bílskúr 42,1m2 þar af.
Húsið er steypt, múrað og málað að utan, nýlegt bárujárn er á þaki.
Að innan skiptist húsið í forstofu, þvottahús, gestasnyrting, baðherbergi, 4 svefnherbergi, stofu, borðstofu og eldhús.
Nánari lýsing:Flísar eru á gólfi í
forstofu.Þvottahúsið er með máluðu gólfi, þar er hurð út á framlóð.
Gestasnyrting er innaf þvottahúsi.
Eldhús er með eldri innréttingu og er parket á gólfi. Búr er innaf eldhúsi.
Herbergisgangur er parketlagður.
Svefnherbergin eru öll parketlögð, fataskápar eru í hjónaherbergi.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, þar er góð innrétting, baðkar og gólfsturta.
Stofa og
borðstofa eru í opnu og rúmgóðu rými, parket er á gólfi og þar er útgengt á sólpall sem er á baklóð. Upptekið loft er í stofunni.
Bílskúr er mjög rúmgóður, klæddur og málaður.
Á baklóð er sólpallur með skjólveggjum og þar er einnig
gróðurhús og lítill geymsluskúr.
Lóðin er gróin og skjólgóð.
Innkeyrsla er steypt.
Í heildina er um að ræða gott eldra einbýlishús í grónu og skjólgóðu hverfi.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.