Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163/ ) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynnir rúmgóða fimm herbergja ibúð á tveimur efstu hæðunum ásamt stæði í bílageymslu við Rekagranda 4. Íbúðin er skráð 114fm en er töluvert stærri þar sem báðar hæðir eru að hluta undir súð, gólfflötur ca 133... Sýna meira
Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163/ ) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynnir rúmgóða fimm herbergja ibúð á tveimur efstu hæðunum ásamt stæði í bílageymslu við Rekagranda 4. Íbúðin er skráð 114fm en er töluvert stærri þar sem báðar hæðir eru að hluta undir súð, gólfflötur ca 133fm að sögn seljanda. Á neðri hæð er gangur, baðherbergi, tvö svefnherbergi, stofa/borðstofa og eldhús. Á efri hæð er hol, tvö herbergi og snyrting auk geymslulofts. Innangengt er úr stigahúsi í bílageymsluhús. SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS NÁNARI LÝSINGNeðri hæð:Gangur; Komið er inná gang með flísalögðu gólfi og er innfelldur skápur á ganginum.Baðherbergi; er flísalagt í hólf og gólf, mað baðkari og sturtuklefa, vaskur í innréttingu og tengi f. þvottavél/þurrkara. Gluggi.Eldhús; Gólf er flísalagt, stór innrétting úr kirsuberjaviði, gaseldavél og háfur og rými fyrir matarborð í miðrými, kvistgluggi með glæsilegu útsýni yfir Faxaflóa.Stofa/borðstofa; eitt rúmgott rými, parketi á gólfi að mestu en flísar að hluta tengt gangrými, útgengt út á skjólgóðar svalir með útsýni til suðurs yfir Reykjanes.Herbergi #1; Rúmgott, nýlegt parket á gólfi og góðir fataskápar.Herbergi #2; Rúmgott, málað parket á gólfi.Efri hæð: Hringstigi liggur úr stofurými uppá efri hæð.Hol; með parketi á gólfi og glugga. Úr holi er innangegnt í 2 herbergi og snyrtingu. Herbergi #3; nýlegt parket, gluggi.Herbergi #4; Mjög rúmgott, parket á gólfi og gluggar í 2 áttir.Snyrting; wc, málað gólf.Sérgeymsla; er í kjallara, með hillum og glugga.Bílageymsla; bílastæði í bílageymslu merkt 12 B16, innangengt í sameign. Þvottastæði er í bílageymslu.Þetta er rúmgóð íbúð sem getur hýst stóra fjölskyldu. Staðsetning er góð og útsýni frábært. Göngufæri við Grandaskóla, Gullborg (leikskóli) og Íþróttasvæði KR.Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða . Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali. 3. Lántökugjald nýrra lána er almennt ca. kr. 50.000. fast gjald óháð lánsfjárhæð. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði