Hætt hefur verið við opið hús - eignin er seld!VALBORG fasteignasla kynnir í einkasölu Rauðavað 13, 110 Reykjavík.Um er að ræða endaíbúð á fyrstu hæð með sérinngangi og stæði í bílakjallara.Eignin er samtals 117,1 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.Íbúðin telur forstofu, þrjú svefnherb... Sýna meira
Hætt hefur verið við opið hús - eignin er seld!VALBORG fasteignasla kynnir í einkasölu Rauðavað 13, 110 Reykjavík.Um er að ræða endaíbúð á fyrstu hæð með sérinngangi og stæði í bílakjallara.Eignin er samtals 117,1 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.Íbúðin telur forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu, eldhús, stofu ásamt stæði í bílageymslu.Stór afgirt og mjög sólrík hellulögð verönd er fyrir aftan hús, gengið út frá stofu. Eldhús er rúmgott með miklu borðplássi, granít á borðplötu.Sérinngangur er í eignina og gæludýr eru leyfð.Bílakjallari er í húsinu og fylgi stæði merkt B67 með íbúðinni.Leikskólinn Rauðhóll er í göngufjarlægð sem og Norðlingaskóli.Ný matvöruverslun er í hverfinu og útivistarsvæðin í Heiðmörk og Elliðaárdalurinn eru í göngufjarlægð.Sjá staðsetningu hér:Nánari upplýsingar veita:Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur .Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur .Lýsing eignar:Forstofa: er flísalögð, hvítur tvöfaldur fataskápur og fatahengi.Eldhús: er með hvítri innréttingu, nýir efri skápar með svörtu gleri, ofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél, borðplatan er grár granítsteinn.Stofa/borðstofa: frá stofu/borðstofu er útgengt á afgirta, hellulagða verönd en þar er sól frá morgni til kvölds.Hjónabergi: rúmgott með tvöföldum fataskáp, parket á gólfi, Herbergi I: tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi.Herbergi II: tvöfaldur fataskápur og parket á gólfi. Herbergið er mjög bjart en þar er horngluggi.Baðherbergi: er nýlega endurnýjað að hluta. Góð innrétting með handlaug, upphengt wc, baðkar og handklæðaofn. Baðherbergi er flísalagt.Granít borðplata á vaskinnréttingu.Þvottahús: með hillum og skolvask, þar er gert ráð fyrir þvottavél og þurkara. Gluggi er í þvottahúsi.Geymsla: er staðsett innan íbúðar sem í dag nýtist sem barnaherbergi.Granít í öllum gluggakistum og borðplötu í eldhúsi og á baði.Bílageymsla: stæði B67 fylgir með íbúðinni en aukalega er þvottastæði í bílakjallara með háþrýstidælu og ryksugu.Húsið er steypt og steinað að utan.Nýlegt viðhald:Nýr dúkur á þakiNýtt baðkar og flísalögn í kringum þaðNýir fataskápar í tveimur herbergjumNýlegur fataskápur í forstofuGluggar og vatnsbretti voru máluð fyrir 3 árumNánari upplýsingar veita:Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur .Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur .Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.