Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Raftahlíð 58, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Vel skipulagt fimm herbergja íbúð í raðhúsi á tveimur hæðum ásamt innbyggðum bílskúr alls 168,5 fm. og byggt árið 1978.
Íbúðin er skráð 145,1 fm. og bílskúrinn 23,4 fm.
Leigulóðin er 318,7 fm.
Fasteignin er vel staðsett í vinsælu hverfi.Íbúðin skiptist í fjögur herbergi, tvö baðherbergi, eldhús og stofu í sama rými, forstofu og þvottahús.Efri hæð:Komið í flísalagða
forstofu þar sem er gólfhiti.
Hol, stofa og eldhús í opnu rými sem er parketlagt.
Í
eldhúsi er hvít innrétting með grárri borðplötu. Tæki og innrétting frá IKEA en bakaraofn frá Siemens. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Tvö svefnherbergi eru á hæðinni, bæði parketlögð. Svalahurð frá öðru herberginu á austursvalir.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, viðarinnréttingu og baðkari. Gólfhiti er á baðherbergi.
Innangengt er frá holi og í bílskúr.
Neðri hæð:Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt, nýleg hvít innrétting og sturta.
Þvottahús er flísalagt og með góðu vaskaborði.
Gangur er parketlagður.
Útgangur er frá þvottahúsi og er í garð.
Bílskúr er frágenginn með rafknúnum hurðaopnara og innréttuðu geymsluplássi innst.Búið er að skipta um útihurð í forstofu og opna forstofuna inn í hol.
Bílaplan er steypt og með snjóbræðslu. Skjólveggir eru til hliðar.
Nýlegur pallur er í garði austan við húsið.
Skipt hefur verið um alla ofna í húsinu.
Svalahandrið hefur verið endurnýjað.
Parket er nýlegt.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga aðstoðarmaður fasteignasala