Allt fasteignasala ehf kynnir í einkasölu: Fallega og rúmgóða eign í vönduðu fjölbýlishúsi að Pósthússtræti 1, 230 Reykjanesbæ. Íbúðin er samtals 147 fm, þar af er 20 fm sér herbergi í kjallara með hafútsýni, hita, rafmagni og skolvaski, einnig er sér geymsla og sérstæði með rafhleðslustöð í bílgeym... Sýna meira
Allt fasteignasala ehf kynnir í einkasölu: Fallega og rúmgóða eign í vönduðu fjölbýlishúsi að Pósthússtræti 1, 230 Reykjanesbæ. Íbúðin er samtals 147 fm, þar af er 20 fm sér herbergi í kjallara með hafútsýni, hita, rafmagni og skolvaski, einnig er sér geymsla og sérstæði með rafhleðslustöð í bílgeymslu, í sameign er hjóla- og vagnageymsla ásamt þvottaaðstöðu fyrir bílinn.Allar nánari upplýsingar veitir Elínborg Ósk lfs. í síma 823-1334 eða á og Unnur Svava lfs. á og í 8682555Íbúðin er á þriðju hæð og hefur mikið útsýni. Tvö svefnherbergi eru í eigninni en gert er ráð fyrir þremur. Sér þvottahús er innan íbúðar með góðri innréttingu. Í eldhúsi er góð eikarinnrétting með eyju. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu rými þar sem útgengt er út á yfirbyggðar, rúmgóðar svalir. Gólfhiti er í íbúðinni. Með íbúðinni fylgir sérstæði í bílageymslu, einnig er rúmgóð sameiginleg hjólageymsla og vagna geymsla á jarðhæð og sameiginlegt svæði í bílageymslu til að þvo bíla. Sameign er virkilega snyrtileg og vel við haldið. Fjölbýlishúsið er mjög vel staðsett við sjóinn og í fallegu umhverfi. Lóðin er stór og vel frágengin, næg bílastæði. Eignin er í göngufæri við verslunarkjarna og alla helstu þjónustu miðbæjarins. Góðir göngustígar meðfram hafinu.* Mjög vel við haldin og vel farin eign* Vandaðar innréttingar* Einn eigandi frá upphafi* Stór stofa og möguleiki á þriðja svefnherberginu* Sér 20 fm herbergi á neðstu hæð, með útsýni fylgir eign* Yfirbyggðar svalir - Mikið útsýni* Mjög vinsæl staðsetning og rólegt umhverfi* Virkilega snyrtileg sameign* Rafhleðslustöð fyrir bíl fylgir með stæði í bílageymslu* Bílaþvottaaðstaða í sameignNánari lýsing:Anddyri, parket á gólfi, stór vandaður fataskápur.Þvottaherbergi, flísar á gólfi, ný vönduð innrétting með skolvaski.Stofa og borðastofa, parket á gólfi, hurð úr stofu út á yfirbyggðar svalir með glæsilegu útsýni.Eldhús, parket á gólfi, vönduð innrétting með eyju.Hjónaherbergi, parket á gólfi, stór vandaður fataskápur. Sjónvarpstengi í skáp.Svefnherbergi, parket á gólfi, vandaður fataskápur.Baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, innrétting, sturta.Geymsla, sérgeymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni.Bílastæði, sameiginlegur bílakjallari, góð þrif aðstaða fyrir bíla er í bílageymslu, eitt bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni. Rafhleðslustöð fylgir.Svalir, rúmgóðar, yfirbyggðarHerbergi í kjallara er 20 fm og fylgir þessari eign í séreign. Kjörið sem hoppýherbergi eða vinnuaðstaða með skolvaski og góðum glugga.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Víkurbraut 62, 240 Grindavík - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.