Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna: Núpahraun 31 Þorlákshöfn.
Fallegt nýlegt fjögurra herbergja steypt raðhús í nýlegu hverfi. 104.6 m², þar af er úti geymsla 4.6 m²
Frágengin lóð og steypt innkeyrsla.Laust til afhendingar við kaupsamning. Allt mjög fínt og vel umgengið.Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu/eldhús í opnu rými, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu og útigeymslu.
Forstofa með flísum á gólfi og fataskápur.
Þvottahús er innangengt úr forstofu, flísalagt og er með góðri innréttingu og glugga.
Eldhús er í opnu rými með borðstofu og stofu og er mjög rúmgott, falleg stór innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Stofan er björt og rúmgóð, útgengt út í garð um stóra rennihurð.
Svefnherbergin eru þrjú, eitt stórt og tvö minni herbergi. Fataskápar eru í öllum herbergjum í dag.
Baðherbergi er með "walk in" sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni, fallegri innréttingu með góðu skápaplássi.
Útigeymsla er undir þakskyggni og er 4,6 fm
Harðparket á gólfum þar sem ekki eru flísar. Hiti í gólfi með stýringum.
Steyptri innkeyrslu og verönd og þökulögð baklóð.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali, snorri@husfasteign.is s. 8648090
Bókið einkaskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.