LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallega 3-4 herbergja risíbúð með sérinngangi í tvíbýlishúsi við Njörvasund 33 í 104 Reykjavík. Frábær staðsetning þar sem stutt í skóla, verslanir og Laugardalurinn þar sem að eru góðar gönguleiðir. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn ...
Sýna meira
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallega 3-4 herbergja risíbúð með sérinngangi í tvíbýlishúsi við Njörvasund 33 í 104 Reykjavík. Frábær staðsetning þar sem stutt í skóla, verslanir og Laugardalurinn þar sem að eru góðar gönguleiðir. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn skráður 69,4 m2 en íbúðin er að hluta til undir súð og eru þvi nýtanlegri m2 mun fleiri en skráningin segir til um. Nánari lýsing.Eldhús með flísalögðu gólfi og hvítri innréttingu með ljúflokunum skúffum og olíuborinni borðplötu, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Helluborð með electrolux ofni og Whirlpool ofni. Stofa með harðparketi á gólfi og innbyggðum fataskáp.Borðstofa sem notuð er sem svefnherbergi með harðparketi á gólfi og fataskáp.Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi og hvítum fataskáp með rennihurðum og gluggum á tvo vegu.Herbergi með harðparketi á gólfi.Baðherbergi með flísalögðu gólfi og hvítri innréttingu og skáp til hliðar með speglahurðum. Baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni og opnanlegur gluggi.Geymsluloft er yfir allri íbúðinni með nýlegum fellistiga.Geymsla er undir stiga.Helstu endurbætur.Nýtt parket á íbúðina árið 2018Fataskápar 2018Hurðar á fataskáp í hol 2018.Helstu endurbætur sameign.Skólp endurnýjað 2017Neysluvatnslagnir endurnýjaðar í eldhúsi 2018Skipt um glugga og gler í íbúðinni árið 2015Fyrirhugaðar framkvæmdir er að skipta um þak og þakrennur, komið er tilboð í þá framkvæmd sem á að fara fram sumar 2021. Í sameign er sameiginlegt þvottahús með neðri hæðinni þar sem hver er með sínar vélar. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 822 2123 eða