***DOMUSNOVA KYNNIR * GLÆSILEG 2JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ***Einstaklega falleg og vönduð 2ja herbergja íbúð á annarri hæð í vönduðu fjölbýlishúsi við Naustavör í Kópavogi.Íbúðin skiptist m.a. í rúmgott anddyri, glæsilegt eldhús með eyju, rúmgóða stofu með útgengi á stórar svalir, stórt svefnherberg... Sýna meira
***DOMUSNOVA KYNNIR * GLÆSILEG 2JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ***Einstaklega falleg og vönduð 2ja herbergja íbúð á annarri hæð í vönduðu fjölbýlishúsi við Naustavör í Kópavogi.Íbúðin skiptist m.a. í rúmgott anddyri, glæsilegt eldhús með eyju, rúmgóða stofu með útgengi á stórar svalir, stórt svefnherbergi með fataherbergi innaf, flísalagt baðherbergi, gott þvottahús og góð geymsla í kjallara. Sér bílastæði merkt íbúðinni á lóð.Birt stærð íbúðar er 77,8fm., geymsla í kjallara 10,7fm. eða samtals birt stærð 88,5fm.NÁNARI LÝSING:Anddyri rúmgott með fataskáp sem nær til lofts. Innfelld lýsing. Þvottahús innaf anddyri. Stofa björt og rúmgóð með útgengi á stórar svalir til vesturs. Glerhandrið á svölum. Fyrirliggjandi eru teikningar og samþykki fyrir svalalokun. Opið frá stofu og borðstofu inn í glæsilegt eldhús.Eldhús er glæsilegt með eyju, með innbyggðum bakarofni, örbylgjuofni og uppþvottavél. Eldhúsinnréttingin nær upp í loft með miklu skápaplássi. Ljós borðplata. Gufugleypir. Innrétting frá Brúnás.Hjónaherbergi er rúmgott með innréttuðu fataherbergi innaf. Vandað teppi á gólfum.Baðherbergi er með vönduðum ljósum 30x60 flísum bæði á gólf og veggi. Skápainnrétting og glæsilegur flísalagður walk-in sturtuklefi með sturtugleri. Handklæðaofn. Þvottaherbergi er innréttað með skápum. Flísalagt gólf með ljósum flísum.Sameign er mjög snyrtileg, nýmáluð og með vönduðum flísum á gólfum í anddyri, inn að lyftu og niður í kjallara að geymslugöngum. Gólf geymslu og geymsluganga eru málaðar epoxy málningu.Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði á lóð.HönnuðirArkitektar: Guðmundur Gunnlaugsson (Archus) og Gunnar Páll Kristinsson (Rýma arkitektar).Verkfræðihönnun: Teiknistofa Þráinn & Benedikt.Raflagnahönnun: Tesla rafmagnshönnun.Almennt:Vandað parket á aðalflötum, nema teppi á svefnherbergi og fataherbergi og flísar í votrýmum.Gólfhiti í allri íbúðinni, svalir 11,3fm.Innihurðir hvítar yfirfelldar án þröskuldaSameign með vönduðum gólfefnum. Rafdrifnar hurðaopnanir á flestum hurðum sameignar.Forhitari á heitu neysluvatniLyfta af gerðinni KoneSnjóbræðsla í göngustígum framan við húsið Nánari upplýsingar veita:Skrifstofa / s.527-1717 / Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.