Gimli fasteignasala og Ólafur Björn Blöndal löggiltur fasteignasali kynna: SJÁVARÚTSÝNINAUSTAVÖR 40 KÓPAVOGI - GLÆSIÍBÚÐ Á 2. HÆÐUm er að ræða 6 herbergja alls brúttó 208,8 fm íbúð merkt 207 ásamt stæði í bílastæðahúsi. Stærð íbúðarinnar er 179,8 fm + 28,4 fm geymsla innaf bílastæði í kjallara. Tven... Sýna meira
Gimli fasteignasala og Ólafur Björn Blöndal löggiltur fasteignasali kynna: SJÁVARÚTSÝNINAUSTAVÖR 40 KÓPAVOGI - GLÆSIÍBÚÐ Á 2. HÆÐUm er að ræða 6 herbergja alls brúttó 208,8 fm íbúð merkt 207 ásamt stæði í bílastæðahúsi. Stærð íbúðarinnar er 179,8 fm + 28,4 fm geymsla innaf bílastæði í kjallara. Tvennar yfirbyggðar svalir. Annars vegar 20,5 fm svalir í suður og 7,7 fm svalir í norður. Um er að ræða einstaklega glæsilega og vel skipulagða eign á frábærum stað með bæði sjávarútsýni og fjallasýn. Gólfsíðir gluggar í stofum og eldhúsi, þar sem horft er yfir Nauthólsvíkina, út Skerjafjörðinn þar sem Snæfellsjökull blasir við í góðu veðri. Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú mjög rúmgóð barnaherbergi. Hjjónaherbergi með fataherbergi og útgengt þaðan út á svalir með sjávarsýn. Tvö glæsileg baðherbergi, sjónvarpsstofu, stórar stofur, glæsilegt eldhús, tvennar svalir og þvottahús innan íbúðar. NÁNARI LÝSING:Forstofa er rúmgóð með miklu skápaplássi, parket á gólfi. Rúmgott herbergi við hlið forstofu með parketi og skápum. Stórt baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, innrétting og "walk in sturta" með innbyggðum blöndunartækjum. Sjónvarpsstofa þaðan sem gengið er út á stórar suðursvalir með glerlokun. Breiður svefnherbergisgangur með tveimur rúmgóðum barnaherbergjum, parket og skápar í báðum. Stórt baðherbergi á gangi með flísalögn, stórri innréttingu og "walk in" sturtu með innbyggðum blöndunartækjum. Rúmgott hjónaherbergi með hvítri skápasamstæðu í fataherbergi. Úgengt er út á norðursvalir með fallegu sjávarútsýni. Stofur eru mjög stórar og bjartar með miklum gólfsíðum gluggum með einstöku útsýni. Útgengt úr stofu út á norðursvalir með glerlokun. Eldhúsið er opið og bjart með glæsilegri dökkri innréttingu frá Brúnás, vönduð tæki, eldaeyja með granítplötum og einnig aðrar borðplötur. Innaf eldhúsi er plássgott þvottahús með innréttingu og vaskborði. Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur eða Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.