KRISTÍN EINARS. lgf. og DOMUSNOVA KYNNA:FALLEGA OG BJARTA 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ MEÐ STÆÐI Í BÍLSKÝLI. ÞVOTTAHÚS INNAN ÍBÚÐAR ÁSAMT GEYMSLU. ÖNNUR GEYMSLA Í SAMEIGN. STÓRT OPIÐ RÝMI MEÐ ÚTGENGI Á SUÐUR SVALIR. TVÖ SVEFNHERBERGI.STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU MEÐ ÞVOTTAAÐSTÖÐU.Skv. HMS er íbúðin skráð 9... Sýna meira
KRISTÍN EINARS. lgf. og DOMUSNOVA KYNNA:FALLEGA OG BJARTA 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ MEÐ STÆÐI Í BÍLSKÝLI. ÞVOTTAHÚS INNAN ÍBÚÐAR ÁSAMT GEYMSLU. ÖNNUR GEYMSLA Í SAMEIGN. STÓRT OPIÐ RÝMI MEÐ ÚTGENGI Á SUÐUR SVALIR. TVÖ SVEFNHERBERGI.STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU MEÐ ÞVOTTAAÐSTÖÐU.Skv. HMS er íbúðin skráð 94,5fm og geymsla í kjallara 4,5 fm samtals 99 fm. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu.Fasteignamat 2024 kr. 67.450.000.Nánari lýsing:Komið er inn á parketlagt anddyri með fataskáp á hægri hönd. Á vinstri hönd eru tvö svefnherbergi, barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.Rúmgott hjónaherbergi með parketi og góðu skápaplássi. Við hlið hjónaherbergis er baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, viðarinnrétting, handklæðaofni og baðkari með sturtugleri. Á móti baðherbergi er flísalagt þvottahús og lítil geymsla með parketi á gólfi.Við enda gangsins í opnu rými er afar rúmgóð stofa/borðstofa og eldhús með parketi á gólfi. Eldhúsið er með fallegri L-laga viðarinnréttingu, keramik AEG helluborði og AEG ofni í borðhæð. Flísalagt er á milli efri og neðri skápa, efri skápar ná upp í loft.Ísskápur, uppþvottavél ásamt öllum loftljósum geta fylgt með í kaupunum. Stofan er afar björt með gluggum sem ná niður á gólf, útgengi er úr stofu út á svalir til suðurs.Nýlegt gólfefni og íbúðin var öll máluð fyrir tæpu ári.Sérmerkt bílastæði er í kjallara hússins, merkt B23. Úr bílageymslu er gengið inn á geymslugang, sér geymsla íbúðar er nr. 8. Sameiginleg vagnageymsla er í bílageymslu. Utangengt er í sameiginlega hjólageymslu við hlið innkeyrsluhurðar. Stutt úr hverfinu í allar helstu samgönguæðar. Hverfið liggur að sjó með skemmtileg smábátahöfn. Nánari upplýsingar veitir:Kristín Einarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.894 3003 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.